Fylgst var grannt með úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar af hagsmunaaðilum í sjávarútvegi í Noregi. Audun Maråk, framkvæmdastjóri Fiskebåt, samtaka útgerðarmanna í Noregi, segir að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fór fram á Íslandi síðastliðinn laugardag hafi komið sér á óvart. Niðurstöðurnar sýni hversu mikið sjálfsákvörðunarréttur yfir auðlindum þýði fyrir fólk, ekki síst á Íslandi, en einnig í Noregi. „Niðurstaðan kom nokkuð á óvart því atkvæðagreiðslan snerist ekki um aðild, heldur um að sjá hvað gæti falist í aðildarsamningi,“ segir Maråk. Hann bendir á að samsvörunin við atkvæðagreiðslu Noregs á sínum tíma sé þó skýr, þar sem léleg lausn í sjávarútvegsmálum stuðlaði að því að Norðmenn höfnuðu aðild árið 1994. Audun Maråk, framkvæmdastjóri Fiskebåt. Hann segir að það sem hafi stuðlað mjög að sigri þeirra sem voru andvígir því að aðildarviðræður Íslands við ESB hæfust á ný hafi verið óttinn við ófullnægjandi lausn í sjávarútvegsmálum. Hann segir að íslensku sjávarútvegsfyrirtækin hafi eytt miklum fjármunum til stuðnings nei-hreyfingunni og bendir jafnframt á að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki geti fjárfest í sjávarútvegi annarra þjóða á sama tíma og fjárfesting erlendra aðila á Íslandi sé takmörkunum háð. „Til skamms tíma gæti það verið jákvæður þáttur fyrir Noreg að ESB þurfi ekki að taka sérstakt tillit til hagsmuna Íslendinga í fiskveiðiviðræðum,“ segir Maråk. „Nei-ákvörðun Íslands hefur ekki áhrif á þá staðreynd að stóri granninn í austri er nú á sínu fimmta ári í stríði í Úkraínu og að Trump Bandaríkjaforseti er kominn vel af stað með tolla- og viðskiptastríð gagnvart restinni af heiminum. Verndarstefnu er vaxa ásmegin. Hingað til hefur hún stuðlað að verri kjörum fyrir Noreg en samkeppnisaðila okkar. Því miður hefur síðasta orðið líklega ekki heldur verið sagt um Grænland. Samstarf í Evrópu í öryggismálum og viðskiptum er því mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Auðlindir á landi og í sjó hafa mikla landfræðilega þýðingu og samstarf er því mikilvægt fyrir öll lönd sem láta sig varða reglustýrða heimsskipan,“ segir Maråk.