Bandaríkjastjórn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi á laugardag, þar sem kosið var um hvort hefja ætti að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í yfirlýsingunni segir að Bandaríkin taki niðurstöðu kosninganna til eftirtektar og virði fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar. Jafnframt lýsir bandaríska utanríkisráðuneytið trausti á því að Ísland haldi áfram á sömu braut sem sterkur og mikilvægur bandamaður innan Atlantshafsbandalagsins og náinn samstarfsaðili Bandaríkjanna og Evrópu. „Við virðum fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar,“ segir í yfirlýsingunni. Bandaríkjastjórn segist jafnframt hlakka til að styrkja samstarfið við Ísland enn frekar á fjölmörgum sviðum. Þar eru sérstaklega nefnd öryggismál, orkumál, nýsköpun, efnahagstengsl og menningarsamstarf. Markmiðið sé að efla sameiginlega sýn ríkjanna á frið og hagsæld. Yfirlýsingin var birt af skrifstofu talsmanns bandaríska utanríkisráðuneytisins á sunnudag, daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.