Erlent | mbl | 31.8.2026 | 12:30 | Uppfært 12:55 Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel Landsmenn gengu að kjörborðinu á laugardag og höfnuðu því að ræða við Evrópusambandið um aðild. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Myndir: Dráttarvélarför til Dalvíkur vakti athygli Fundur hafinn um niðurstöðu kosninganna Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður » Fleiri tengdar fréttir Það að Íslendingar hafi kosið gegn því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur sett stein í götu stjórnvalda í Brussel, á leið þeirra til að verða þungamiðja í öryggis- og varnarmálum. Á þann veg eru niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar túlkaðar í fréttabréfi Financial Times um Evrópumál. Þar eru Íslendingar sagðir hafa kosið með „veskinu“ sínu. Bent er á að aðild að ESB hafi lengi verið talin greið leið að efnahagslegum ávinningi hvað varðar þróunaraðstoð og aðgang að auðæfum innri markaðarins. Frá innrás Rússa í Úkraínu 2022 hefur hins vegar verið lögð meiri áhersla á varnarmál og hefur ESB sagt varnir sambandsins geta staðist ytri ógnir. Þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardaginn er sögð að hluta til afleiðing af hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta í garð Grænlands og óútreiknanlegri afstöðu hans til NATO. Mánuðina fyrir atkvæðagreiðsluna hafi háttsettir embættismenn ESB og erindrekar aðildarríkja talað um hugsanlega aðild Íslands sem staðfestingu á því að sambandið gæti laðað að sér rík en landfræðilega viðkvæm ríki, ekki bara fátæk lönd í austurhluta álfunnar. Frétt af mbl.is „Þetta er nei sem svíður í Brussel“ Frétt af mbl.is „Bakslag fyrir Brussel“ Formenn ríkisstjórnarflokkanna héldu blaðamannafund í gær eftir að úrslitin voru kunngjörð. mbl.is/Hákon Óljóst hvernig áhrifin verða á önnur ríki Þess í stað hafi Íslendingar ákveðið að taka vagninn með NATO og Trump til að halda yfirráðum yfir sjávarútvegi sínum og „hátekjuhagkerfi“ og viðhalda viðskiptasambandinu við ESB með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu. „Þeir finna fyrir öryggi undir verndarvæng NATO. Við erum með góðan tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin,“ hefur blaðið eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. „Þetta er mikill lærdómur fyrir mig og ríkisstjórnina og niðurstaðan er sú að fólk er ánægt með EES-samninginn. Það er ánægt með núverandi samband við ESB.“ Frétt af mbl.is ESB verði harðara í horn að taka Vísað er til þess að í febrúar hafi Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagt að ESB myndi „efla sig“ á sviði varnarmála og mynda „nýtt samstarf í öryggismálum“ við lykilaðila eins og Ísland, í ræðu þar sem hún lagði áherslu á sameiginleg varnarákvæði sambandsins sem lykilþátt aðildar. Einhverjir embættismenn hafi þegar verið farnir að tala um fyrirhugaða umsókn Íslands um aðild að ESB sem hvata fyrir önnur rík NATO-ríki, eins og Noreg. Óljóst sé hins vegar hvernig höfnun Íslands gæti haft áhrif á aðrar hugsanlegar umsóknir. Tengdar fréttir Ísland og ESB Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Myndir: Dráttarvélarför til Dalvíkur vakti athygli Fundur hafinn um niðurstöðu kosninganna Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Hópurinn gegn Tyrkjum Gott að fá byrjunarráðgjöf í loðnu Segir stríð við Bandaríkin ekki vera í þágu Írans Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leituðum skjóls í helli „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Kona stungin til bana á lestarstöð „Aðgerðir NATO á norðurslóðum eru ógn við Rússland“ Yfir 20 manns saknað eftir skyndiflóð í Miklagljúfri Á fimmta þúsund er saknað Fyrstu árásir á Hormússundi í rúman mánuð Treystir yfirvöldum til að varpa ljósi á harmleikinn Skipstjórinn í gæsluvarðhaldi og dánartalan rís Íran og Bandaríkin skiptast á skotum í fyrsta sinn í mánuð Búa sig undir stóra yfirlýsingu eftir helgi Einn handtekinn eftir skotárás á hátíð í Sviss Búa sig undir stóra yfirlýsingu eftir helgi Börn í höndum glæpamanna ESB virðir vilja íslensku þjóðarinnar Næstu sex mánuðir muni skipta sköpum fyrir NATO Skipstjórinn í gæsluvarðhaldi og dánartalan rís Sjö látnir eftir að farþegaferju hvolfdi Fyrstu árásir á Hormússundi í rúman mánuð Einn látinn í skotárás í Sviss Treystir yfirvöldum til að varpa ljósi á harmleikinn Yfir 20 manns saknað eftir skyndiflóð í Miklagljúfri Karl konungur harmi sleginn Bandaríkjaher óvænt í Moskvu Fóru snemma úr vinnu fyrir mannskætt slys „Held að hann sé ekki dáinn“ Voveiflegur líkfundur á Kanaríeyjum Svíar senda hersveitir til Finnlands Tesla innkallar næstum þrjár milljónir bíla Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Staðfest að banameinið var þungt höfuðhögg Búa sig undir stóra yfirlýsingu eftir helgi Nýjast á mbl.is » Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Hópurinn gegn Tyrkjum Gott að fá byrjunarráðgjöf í loðnu Segir stríð við Bandaríkin ekki vera í þágu Írans Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýjar tölur úr Suðvestur: Nei tekur fram úr Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Mest lesið Í gær Í vikunni Kona stungin til bana á lestarstöð „Aðgerðir NATO á norðurslóðum eru ógn við Rússland“ Yfir 20 manns saknað eftir skyndiflóð í Miklagljúfri Á fimmta þúsund er saknað Fyrstu árásir á Hormússundi í rúman mánuð Treystir yfirvöldum til að varpa ljósi á harmleikinn Skipstjórinn í gæsluvarðhaldi og dánartalan rís Íran og Bandaríkin skiptast á skotum í fyrsta sinn í mánuð Búa sig undir stóra yfirlýsingu eftir helgi Einn handtekinn eftir skotárás á hátíð í Sviss Búa sig undir stóra yfirlýsingu eftir helgi Börn í höndum glæpamanna ESB virðir vilja íslensku þjóðarinnar Næstu sex mánuðir muni skipta sköpum fyrir NATO Skipstjórinn í gæsluvarðhaldi og dánartalan rís Sjö látnir eftir að farþegaferju hvolfdi Fyrstu árásir á Hormússundi í rúman mánuð Einn látinn í skotárás í Sviss Treystir yfirvöldum til að varpa ljósi á harmleikinn Yfir 20 manns saknað eftir skyndiflóð í Miklagljúfri Karl konungur harmi sleginn Bandaríkjaher óvænt í Moskvu Fóru snemma úr vinnu fyrir mannskætt slys „Held að hann sé ekki dáinn“ Voveiflegur líkfundur á Kanaríeyjum Svíar senda hersveitir til Finnlands Tesla innkallar næstum þrjár milljónir bíla Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Staðfest að banameinið var þungt höfuðhögg Búa sig undir stóra yfirlýsingu eftir helgi