Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Orkuveitan hagnaðist um 4,9 milljarða

Read Full Article →

Orkuveita Reykjavíkur hagnaðist um 1,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 441 milljón króna á sama tímabili árið áður. Afkoman á fyrstu sex mánuðum ársins nam 4,9 milljörðum króna, eins og á fyrri árshelmingi 2025. Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrri hluta ársins jukust um 13% milli ára og námu 38,8 milljörðum króna samanborið við 34,4 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 23,7 milljörðum króna og jókst um 17% frá fyrra ári. Þá nam veltufé frá rekstri 18,2 milljörðum króna en var 15,9 milljarða króna á fyrri helmingi ársins 2025. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri OR, segir í afkomutilkynningu að bætt rekstrarafkoma geri félaginu kleift að ráðast í umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum og styrkja enn frekar orku- og veituþjónustu á starfssvæði sínu. „Þrátt fyrir hærri fjármagnskostnað og tímabundin áhrif af rekstrartruflunum hjá stórum viðskiptavini er fjárhagsstaða samstæðunnar sterk, lausafjárstaðan góð og félagið vel í stakk búið til að mæta vaxandi þörfum samfélagsins á komandi árum.“ Mál OR og Norðuráls komið fyrir gerðardóm Orkuveita Reykjavíkur og dótturfélagið ON Power hafa staðið í deilum við Norðurál um kaupskyldu á raforku eftir rekstrarstöðvunina á Grundartanga í október sl. OR vill fá greitt samkvæmt samningi en lögmenn Norðuráls hafa hafnað því. Í uppgjörinu kemur fram að Orkuveitan og ON Power hafi hafið gerðardómsmeðferð til að fá úr málinu skorið. Sjá einnig OR í hart við Norðurál og Lands­net Sævar Freyr segir að trausta afkomu á fyrri árshelmingi megi ekki síst rekja til þess aðhalds sem félagið greip til síðasta haust þegar rekstur Norðuráls varð fyrir skakkaföllum. „Þar hefur gengið betur að greiða úr en óttast var og þess nýtur Orkuveitan nú.“

Share this article