Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vilja banna kínverska bíla varanlega

Read Full Article →

Bandarísku þingmennirnir Bernie Moreno og Elissa Slotkin hafa lagt fram frumvarp sem myndi banna varanlega sölu nettengdra bíla frá Kína í Bandaríkjunum. Bannið myndi einnig ná yfir bíla frá Íran, Norður-Kóreu og Rússlandi. Þetta kemur fram á vef New York Times en þar segir að frumvarpið njóti stuðnings úr báðum flokkum og hafi verið samþykkt einróma í nefnd. Samkvæmt frumvarpinu mætti enginn bílaframleiðandi sem er að meira en 15% eigu kínversks aðila selja bíla í Bandaríkjunum. Kínverskur hugbúnaður yrði einnig bannaður á næsta ári og vélbúnaður árið 2030. Sjá einnig Bandaríkin banna sölu á Polestar Mercedes-Benz, sem er í nær 20% eigu kínverskra aðila, gæti þannig ekki selt bíla í Bandaríkjunum nema eignarhlutur kínverskra aðila í fyrirtækinu minnkaði eða félagið fengi undanþágu frá bandaríska viðskiptaráðuneytinu. Sömuleiðis myndu íbúar Kanada og Mexíkó, sem hafa keypt kínverskan bíl með lögmætum hætti í heimalandi sínu, ekki einu sinni fá leyfi til að aka bílnum yfir landamæri Bandaríkjanna í dagsferð. Sjá einnig Kína herðir tökin á evrópskum bílaiðnaði

Share this article