Íslensk strandmenningarhátíð var haldin í fyrsta sinn á Siglufirði um helgina. Ungir húsasmíðanemar frá Sauðárkróki hófu leika með að kynna sér smíði súðbyrðinga og reyndu svo fyrir sér í róðri. Íslenska vitafélagið hafði lengi langað að tengja ungt fólk þessari aldagömlu menningu - og var það því fyrsta mál á dagskrá þegar strandmenningarhátíðin hófst. „Þetta er mjög mikilvæg menningararfleið, Ísland byggðist jú með bátum“, segir skipuleggjandi. Og þessum auði hafs og stranda var fagnað um helgina, í formi myndlistarsýninga, kvikmynda, ljóðlistar og fleiru. En nemendunum fannst mikið til smíðarinnar koma - og ekki síst hversu mikið var lagt í hvern bát.