Einn leikur var í 21. umferð Bestu deildar karla í kvöld, Stjarnan vann 0-2 sigur á Breiðabliki í Kópavogi. Bæði lið fengu fín færi í upphafi leiks, Stjarnan þó öllu fleiri og þeir skoruðu líka fyrsta markið. Guðmundur Kristjánsson skallaði hornspyrnu Benedikt Warén í netið á 29. mínútu. Stjörnumenn létu kné fylgja kviði og Birnir Snær Ingason tvöfaldaði forystuna á 40. mínútu eftir flottan undirbúning Örvars Eggertsonar. 0-2 stóð í hálfleik. Blikar reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn og vildu til að mynda fá vítaspyrnu í uppbótartíma en höfðu ekki erindi sem erfiði. 0-2 reyndust lokatölur. Stjarnan hefur nú unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum, þar af báða eftir Jón Þór Hauksson var rekinn. Liðið er í sjöunda sæti og með jafn mörg stig og ÍA sem er í því sjötta en með betri markatölu. Breiðablik hefur hins vegar tapað fjórum af sínum síðustu fimm og gert eitt jafntefli. Blikar eru þó öryggir með sæti í efri hlutanum þegar deildinni verður skipt eftir næstu umferð. 21. umferðin klárast annaðkvöld þegar KR tekur á móti Víkingi í toppbaráttuslag, leikurinn hefst 17:30.