Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Dagurinn í dag er sorgardagur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.8.2026 | 22:40 „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, las síðustu sjónvarpsfréttir Sýnar í kvöld. mbl.is/Eyþór Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Ekki við Sýn að sakast „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ » Fleiri tengdar fréttir „Við leyfðum þessum degi að eiga bara allar þær tilfinningar sem fylgdu honum: reiði, sorg, pirring, svekkelsi og allt það, en svo mætum við á morgun og við höldum fulla ferð áfram,“ segir ritstjóri fréttastofu Sýnar, Kolbeinn Tumi Daðason. Síðasti sjónvarpsfréttatími Sýnar var sendur út í kvöld eftir nærri 40 ára sögu og sá Kolbeinn Tumi um að lesa þar kvöldfréttirnar í hinsta sinn. Frétt af mbl.is Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Frétt af mbl.is Á annan tug starfsmanna sagt upp Dagur mikilla tilfinninga „Dagurinn í dag er sorgardagur og dagur mikilla tilfinninga. Það voru alls konar tilfinningar á fréttastofunni í dag,“ segir fréttastjórinn í samtali við mbl.is. „Þetta er 40 ára saga sem við erum að setja lokapunkt á og það er náttúrulega mjög erfitt. Það varð bylting þegar frumkvöðlarnir komu þessu á koppinn fyrir 40 árum og þetta er búið að vera stór hluti af íslensku þjóðinni síðan.“ Frétt af mbl.is Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Rosalega breyttur heimur“ Hann kveðst ánægður með að viðbrögðin frá samfélaginu hafi verið mikil eftir að tilkynnt var í morgun að sjónvarpsfréttir Sýnar væru að hætta. Á sama tíma sé leiðinlegt að nú sé ríkjandi sú staða að sjónvarpsfréttir reki sig ekki lengur. „[...] og ekki bara sjónvarpsfréttir heldur eiga bara fjölmiðlar yfir höfuð undir högg að sækja. Það er bara rosalega breyttur heimur. Annars vegar erum við í bullandi basli með auglýsingatekjurnar sem streyma úr landi til annarra og erlendra risa og svo erum við líka kannski aðeins búin að venja fólk kannski fullmikið við að greiða ekki fyrir fréttirnar sínar,“ segir ritstjórinn og bendir á að ekki sé hægt að nefna mörg dæmi um starfsemi sem geti rekið sig ókeypis. Frétt af mbl.is „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Fjölmiðlar þurfi að finna leiðir til þess að styrkja sig Aðspurður kveðst Kolbeinn Tumi vona að aðgerðir séu í vinnslu hjá stjórnvöldum til að styrkja fjölmiðlamarkaðinn. Þá þurfi fjölmiðlarnir einnig sjálfir að reyna að finna leiðir til að styrkja sig og vinna með neytendum sínum að lausnum. „Við erum með fullt af fólki þarna úti sem kann að meta fréttirnar okkar og ég er sannfærður um að stór hluti af þessu fólki væri til í að borga fyrir fréttirnar. Ég er ekki að boða það – það er ekkert í farvatninu að við séum að fara að rukka – en það hlýtur á endanum að vera eitthvað sem fólk skoðar,“ segir Kolbeinn og vísar til þess að slík viðskiptamódel séu byrjuð að sjást á öðrum miðlum. „Þetta hlýtur bara að vera nútíðin, ekki einu sinni framtíðin. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem ókeypis miðlarnir fara að skoða.“ Frétt af mbl.is Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ Fulla ferð áfram Sýn mun nú beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og kveðst Kolbeinn Tumi bjartsýnn á komandi tíma. Dagurinn í dag hafi verið tilfinningaþrunginn en á morgun komi nýr dagur. „Svo mætum við á morgun og við höldum fullri ferð áfram á Vísi og ætlum að vera mjög lifandi og með fréttir líka á sjónvarpsformi þó svo að þær verði ekki í formi kvöldfrétta klukkan 18.30.“ Frétt af mbl.is Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Ekki við Sýn að sakast „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þá er okkur kálað“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Tekur stól Simon Cowell á meðan hann jafnar sig Góðar fréttir fyrir Rúnar Alex Hvetur til varanlegrar lækkunar Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Pútín óttast snöruna „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » „Þá er okkur kálað“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Tekur stól Simon Cowell á meðan hann jafnar sig Góðar fréttir fyrir Rúnar Alex Hvetur til varanlegrar lækkunar Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Pútín óttast snöruna Mannskæðustu bílslys aldarinnar „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“

Share this article