Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mun krefja fjármálaráðherra svara

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.9.2026 | 6:00 Mun krefja fjármálaráðherra svara Áhyggjur eru yfir afkomu bílaleiga vegna endurákvörðunar vsk. mbl.is/Eggert Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá hefur ekkert svar komið frá Skattinum um hvernig hann hyggst bregðast við þessum umkvörtunum bílaleiganna og óskum um að málið verði endurskoðað. Á þessari stundu er óljóst hvort fyrirtækin hreinlega lifi þetta af og eftir því sem ég heyri þá veldur þessi staða mikilli óvissu og skorti á fyrirsjáanleika, t.d. fyrir næsta ár.“ Þetta segir segir Rósa Guðbjartsdóttir alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið. Málið sem hér um ræðir varðar endurákvörðun Skattsins á virðisaukaskatti á bílaleigur sem tekur til áranna 2024 og 2025, en sú ákvörðun leiðir til verulegrar hækkunar, bæði hvað varðar höfuðstól og síðan bætist þar ofan á 10% álag ásamt dráttarvöxtum. Málið snýst um virðisaukaskatt af þóknun fyrir dreifingu vátrygginga. Þannig getur bílaleiga verið dreifingaraðili vátrygginga fyrir hönd vátryggingafélags og fengið þóknun fyrir þá þjónustu, þ.e. fyrir að koma á réttarsambandi á milli vátryggingafélagsins og leigutakans. Þóknunin er án virðisaukaskatts og snýst málið um það, en Skatturinn er ekki sammála því og krefur bílaleigurnar um skattinn, enda þótt þær hafi ekki innheimt hann í þeirri trú að starfsemin væri undanþegin virðisaukaskatti, sem og vátryggingastarfsemi og dreifing vátrygginga. Hafa nokkrar bílaleigur verið rukkaðar um mörg hundruð milljónir vegna þessa. „Þetta er farið að hafa þau áhrif að fjármögnunarfyrirtækin eru farin að frysta lánalínur til bílaleiganna sem ætluðu sér að endurnýja bílaflotann og það mun síðan hafa víðtækari áhrif,“ segir Rósa og nefnir í því sambandi bifreiðaumboðin sem verða muni af mikilli bílasölu. „Það er furðulegt að ekkert svar komi frá Skattinum. Fjármálaráðherra tók undir með mér á Alþingi í byrjun sumars um að þetta væri áhyggjuefni og mátti skilja af hans orðum að það ætti að skoða málið í ráðuneytinu. Ég vona sannarlega að verið sé að horfa á málið með opnum huga og að það verði leyst, og áður en fyrirtækin lenda í vandræðum vegna þessa,“ segir hún og nefnir að mörg fyrirtæki geti hæglega orðið gjaldþrota vegna þessa og fjöldi starfsfólks þeirra misst vinnuna. Það myndi einnig hafa neikvæð áhrif á framboð á bílaleigubílum til erlendra ferðamanna. Rósa kveðst vonast til þess að fjármálaráðherra einhendi sér í að leysa þetta mál. Hún ætli sér að krefja hann svara um hvað hann hyggist fyrir þegar Alþingi kemur saman í næstu viku eftir sumarleyfi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tveir látnir eftir hnífstungu á Times Square Mun krefja fjármálaráðherra svara Vill ekki draga umsóknina til baka Tveir kvenforsetar í essinu sínu Andlát: Óli Hjálmar Ólason Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Á annan tug starfsmanna sagt upp „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Mun krefja fjármálaráðherra svara Mannskæðustu bílslys aldarinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Engin orð ná utan um slíkan missi“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Hvetur til varanlegrar lækkunar Ekki við Sýn að sakast Skora á atvinnurekendur og stjórnvöld Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli Nýjast á mbl.is » Tveir látnir eftir hnífstungu á Times Square Mun krefja fjármálaráðherra svara Vill ekki draga umsóknina til baka Tveir kvenforsetar í essinu sínu Andlát: Óli Hjálmar Ólason Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Pútín óttast snöruna Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Engin orð ná utan um slíkan missi“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Hvetur til varanlegrar lækkunar Ekki við Sýn að sakast Skora á atvinnurekendur og stjórnvöld Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli

Share this article