Innlent | Morgunblaðið | 1.9.2026 | 8:00 Endurflytja þarf mál vegna ummæla Málið verður endurflutt. mbl.is/Hanna Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dómari við Landsrétt, hefur vikið úr sakamáli eftir að ummæli hennar við aðalmeðferð þóttu geta vakið efasemdir um óhlutdrægni hennar. Málið varðar mann sem Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi fyrir frelsissviptingu, kynferðisbrot, stórfellda líkamsárás, hótanir og fleiri brot. Hann var dæmdur í tveggja ára og sex mánaða fangelsi. Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að hafa svipt annan mann frelsi sínu í íbúð í Garðabæ í janúar 2023 og haldið honum þar í um tvær klukkustundir og tuttugu mínútur. Samkvæmt ákæru fylgdi hann manninum inn í herbergi þar sem hann hafði komið fyrir myndavél til að taka frelsissviptinguna upp. Hann var jafnframt ákærður fyrir kynferðisbrot og stórfellda líkamsárás gegn öðrum brotaþola. Verjandi hafði áhyggjur Við aðalmeðferð málsins 26. maí voru spilaðar hljóð- og myndupptökur af framburði ákærða, meðákærða og brotaþola fyrir héraðsdómi. Þegar upptaka af háttsemi ákærða var spiluð fyrir Landsrétti óskaði Ingibjörg eftir því að gert yrði hlé á aðalmeðferðinni. Síðar, þegar verjandi ákærða fjallaði um upptökuna og afleiðingar þeirrar háttsemi sem þar birtist, tók Ingibjörg til máls og bað verjandann um að „misbjóða“ ekki dóminum með málflutningi sínum. Verjandinn sendi Landsrétti tölvupóst daginn eftir og lýsti áhyggjum af því að skjólstæðingur hans fengi ekki réttláta málsmeðferð. Taldi hann ummæli og viðbrögð dómarans vekja spurningar um óhlutdrægni hennar. Landsréttur boðaði í kjölfarið til sérstaks þinghalds vegna málsins. Verjandinn krafðist þess þó ekki formlega að Ingibjörg viki úr málinu og saksóknari taldi heldur ekki tilefni til þess. Landsréttur tók engu að síður hæfi Ingibjargar til skoðunar að eigin frumkvæði. Í úrskurðinum, sem dagsettur er 8. júní, segir að ekki sé nóg að dómari telji sjálfur að hann geti dæmt í máli af óhlutdrægni. Einnig þurfi að horfa til þess hvort aðstæður séu þannig að málsaðilar eða almenningur geti með réttu efast um óhlutdrægni dómarans. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að ummæli Ingibjargar við verjandann, þegar þau væru metin með hliðsjón af sakarefni málsins, væru þess eðlis að réttmætur vafi gæti vaknað um óhlutdrægni hennar. Ingibjörg vék því úr málinu og verður það flutt að nýju fyrir Landsrétti með öðrum dómara. Málið verður tekið fyrir hinn 7. september. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Endurflytja þarf mál vegna ummæla Sælureitur í Grímsnesi á 190 milljónir Spilar frítt fyrir uppeldisfélagið Ástrali sagður látinn í Nepal Rússi grunaður um morð á þremur mönnum er látinn Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki við Sýn að sakast Óttast að netárásum muni fjölga Uppsagnir hjá RÚV Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Vill ekki draga umsóknina til baka Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mun krefja fjármálaráðherra svara „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli Nýjast á mbl.is » Endurflytja þarf mál vegna ummæla Sælureitur í Grímsnesi á 190 milljónir Spilar frítt fyrir uppeldisfélagið Ástrali sagður látinn í Nepal Rússi grunaður um morð á þremur mönnum er látinn Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Seðlabankastjóri sendir út aðvörun Fölsuðu röddina í rauntíma „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Vill ekki draga umsóknina til baka Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mun krefja fjármálaráðherra svara „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli