Eignarhaldsfélagið Sunnunes ehf. sem er í jafnri eigu Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Jóns Björnssonar, forstjóra Veritas, hagnaðist um 35 milljónir króna árið 2025. Til samanburðar hagnaðist félagið um 435 milljónir árið áður sem rekja má til sölu á óbeinum eignarhlut í þremur fyrirtækjum á auglýsingamarkaði, þar á meðal Billboard, til Símans í ársbyrjun 2024. Eignir Sunnuness, sem er nær skuldlaust, námu 636 milljónum króna í árslok 2025. Þar af nam verðbréfaeign félagsins 367 milljónum króna og eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 225 milljónum króna. Sunnunes á meðal annars 25% hlut í fjárfestingarfélaginu Var ehf. sem átti áður stóran hlut í ofangreindum fyrirtækjum á auglýsingamarkaði. Rekstrartekjur Sunnuness námu 40 milljónum króna í fyrra. Liðurinn matsbreyting og sölutap eignarhluta var neikvæður um 19,4 milljónir króna en hlutdeildar-, arðs- og vaxtatekjur námu 59,7 milljónum króna. Sunnunes hyggst greiða út 30 milljónir króna í arð til hluthafa. Til samanburðar greiddi félagið út 40 milljónir króna í fyrra og 80 milljónir króna árið 2024, en þess má geta félagið hafði ekki greitt út arð fyrir þann tíma. Heildar arðgreiðslur á árunum 2024-2026 nema því 150 milljónum króna. Halla sagði í samtali við Viðskiptablaðið sumarið 2024 að hún væri með stóran hluta af persónulegum sparnaði sínum bundinn í Sunnunesi sem var stofnað árið 2014. Hún fjárfesti í félaginu í kjölfar þess að hún seldi hlut sinn í Auði Capital, fjármálafyrirtæki sem hún stofnaði árið 2007 ásamt Kristínu Pétursdóttur. Halla sagði Sunnunes einkum hafa staðið í litlum fjárfestingum í óskráðum félögum. Hún bætti við að Jón stýri Sunnunesi og fjárfestingum félagsins. Hún hefði enga aðkomu haft að rekstri Sunnuness. Sjá einnig Hlutdeild Höllu í fyrirtækjasölu til Símans um 200 milljónir