Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mette-Marit ekki viðstödd þegar Hákon sver embættiseið

Read Full Article →

Mette-Marit Noregsdrottning glímir við fylgikvilla eftir lungnaígræðslu í júní og getur því ekki verið viðstödd þegar eiginmaður hennar, Hákon konungur, sver embættiseið í dag. NRK, norska ríkissjónvarpið , greinir frá því að hún hafi glímt við fylgikvilla vegna lungnaígræðslunnar, sem þó gekk vel. Fram kemur í yfirlýsingu lungnalæknisins Are Hom að drottningin finni fyrir fylgikvillunum í dag og verði því undir eftirliti lækna. Hákon sver embættiseið klukkan 11.00 að íslenskum tíma. Börn hans, Ingiríður Alexandra krónprinsessa og Sverrir Magnús prins, verða viðstödd, auk Sonju drottningar. Mynd tekin í gær, 31. ágúst. Mette-Marit Noregsdrottning, Sonja drottning, Marta Lovísa prinsessa og Hákon konungur lögðu blóm á torgið við konungshöllina til minningar um Harald konung sem lést á föstudag.EPA / Javad Parsa

Share this article