Gunnur Helgadóttir hefur verið ráðin forstjóri Hrafnistu en hún hefur gegnt starfinu tímabundið frá lokum júlí. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistu. Áður en Gunnur hóf störf hjá Hrafnistu árið 2020 var hún framkvæmdastjóri lyfjafyrirtækisins Vistor í nærri tíu ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BS-próf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Gunnur hefur auk þess víðtæka stjórnunarreynslu og starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur. Sjá einnig 50-60 milljarða uppbygging hjúkrunarheimila og íbúða „Við erum afar ánægð með að Gunnur taki við starfi forstjóra Hrafnistu til framtíðar. Hún þekkir starfsemi okkar vel og getur því strax stigið inn í mikilvæg verkefni. Auk þess sem hún býr yfir öflugri blöndu af faglegri þekkingu og stjórnunarreynslu,“ segir Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs. Hrafnista er stærsti rekstraraðili hjúkrunarheimila á Íslandi og rekur sex hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og eitt á Reykjanesi. „Ég tek við starfinu af mikilli tilhlökkun og metnaði. Hrafnista býr yfir mikilli þekkingu og öflugu starfsfólki. Ég hlakka til að vinna áfram með þessum góða hópi að því að þróa þjónustuna og skapa íbúum okkar öryggi, traust og vellíðan,“ segir Gunnur Helgadóttir.