Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Slökktu eld í 12 spora húsinu Holtagörðum

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Slökktu eld í 12 spora húsinu Holta­görð­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Eldur kviknaði í verslunarmiðstöðinni Holtagörðum í dag. Allar stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar út og voru slökkviliðsmenn voru fljótir að ráða niðurlögum eldsins eftir að þeir komu á staðinn. Samkvæmt upplýsingum á vettvangi kom eldurinn upp í 12 spora húsinu. Slökkvilið var kallað að Holtagörðum í morgun. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Þor­gerð­ur Katrín ræður Rún sem að­stoð­ar­mann Brynjólfur Þór Guðmundsson Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið sér nýjan aðstoðarmann. Rún Ingvarsdóttir tók til starfa sem aðstoðarmaður hennar í dag. Rún hefur síðasta rúma áratuginn unnið að samskiptamálum, fyrst hjá Landsbankanum og síðan sem samskiptastjóri Veitna, dótturfélags Orkuveitunnar. Þar áður var hún fréttamaður á RÚV í átta ár. Þorgerður Katrín er með tvo aðstoðarmenn eftir ráðninguna. Fyrir var Ingileif Friðriksdóttir í starfi. Rún Ingvarsdóttir. Utanríkisráðuneytið Fyrir 34 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Beint: Hákon Nor­egs­kon­ung­ur sver eið sem kon­ung­ur Hákon sver eið sinn sem konungur Noregs í Stórþinginu í dag. Hann tekur þannig formlega við völdum að föður sínum gengnum. Fyrir 44 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Mesta verð­bólga á evru­svæð­inu í þrjú ár Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðbólga á evrusvæðinu mældist 3,3 prósent í síðasta mánuði. Það er mesta verðbólga í þrjú ár. Vaxandi verðbólga er ekki síst rakin til þess að orkukostnaður hefur aukist vegna stríðsins við Persaflóa. Eldsneytisverð hækkaði um 14,3 prósent í ágúst og hafði þá þegar hækkað um 10,3 prósent í júlí. Verðbólgan jókst mikið milli mánaða, fór úr 2,9 prósentum í júlí í 3,3 prósent í ágúst. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu gengur út á að verðbólga sé um tvö prósent. Evrumerki skreytt stjörnum. EPA Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Stuðn­ings­menn Vík­inga unnu skemmd­ar­verk á KR-vell­in­um Stuðningsmenn Víkings máluðu varamannaskilti og stúkuna á KR-velli í skjóli nætur. Liðin mætast í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Mette-Marit ekki við­stödd þegar Hákon sver eið sem kon­ung­ur Dagný Hulda Erlendsdóttir Mette-Marit Noregsdrottning glímir við fylgikvilla eftir lungnaígræðslu í júní og getur því ekki verið viðstödd þegar eiginmaður hennar, Hákon, sver í dag eið sem konungur Noregs. NRK, norska ríkissjónvarpið, greinir frá því að hún hafi glímt við fylgikvilla vegna lungnaígræðslunnar, sem þó gekk vel. Fram kemur í yfirlýsingu lungnalæknisins Are Hom að drottningin finni fyrir fylgikvillunum í dag og verði því undir eftirliti lækna. Hákon sver eiðinn klukkan 11.00 að íslenskum tíma. Börn hans, Ingiríður Alexandra krónprinsessa og Sverrir Magnús prins, verða viðstödd, auk Sonju drottningar. Mynd tekin í gær, 31. ágúst. Mette-Marit Noregsdrottning, Sonja drottning, Marta Lovísa prinsessa og Hákon konungur lögðu blóm á torgið við konungshöllina til minningar um Harald konung sem lést á föstudag. EPA / Javad Parsa Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Fundu engar moskítóflug­ur í Ölfusi Í síðustu sýnatöku í hesthúsi í Ölfusi, þar sem moskítóflugur fundust í fyrrahaust, fundust engar moskítóflugur. Fjölmargar ábendingar hafa borist Náttúrufræðistofnun um meintar moskítóflugur víða um land en í öllum tilvikum voru þær aðrar tegundir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Gjald­taka hafin við Horna­fjarð­ar­fljót – stök ferð kostar 1500 krónur Nýr vegur um Hornafjarðarfljót var formlega tekin í notkun 24. júní. Í dag hefst gjaldtaka á veginum. Gjaldtakan verður sjálfvirk og kostar stök ferð 1500 krónur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Von­brigði að stjórn­völd hafi ekki fram­lengt tíma­bundna lækkun á elds­neyt­is­verði Verð á bensíni og dísil hækkaði um allt að 31 krónu á miðnætti þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir það vonbrigði að stjórnvöld hafi ekki framlengt aðgerðirnar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Eldur í bíl á Reykja­nes­braut Ragnhildur Helgadóttir Eldur logar í bíl á Reykjanesbraut, skammt frá Arnarnesvegi. Þetta staðfestir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Útkall barst fyrir tæpum 20 mínútum. Einn slökkvibíll var sendur á vettvang. Að sögn Stefáns rýkur enn úr bílnum sem hefur verið komið fyrir á umferðareyju. Að sögn sjónarvotta hafa myndast talsverðar umferðartafir vegna þessa en Stefán segir að umferð komist nú greiðlega framhjá. Mynd / Aðsend Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Gas­meng­un yfir heilsu­vernd­ar­mörk­um vegna nýs hlaups í Múla­kvísl Brennisteinsvetni mælist yfir heilsuverndarmörkum við Múlakvísl. Vatn hefur ekki hækkað í ánni en það gæti gerst í framhaldinu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tólf drepn­ir í árásum Rússa Rússar réðust að höfuðborg Úkraínu og nágrenni hennar með drónum og eldflaugum. Í það minnsta tólf voru drepnir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Um­sókn­um um dval­ar­leyfi vegna náms fækkar um­tals­vert milli ára Umsóknum um fyrstu dvalarleyfi á grundvelli náms fækkaði milli ára. Í sumar samþykkti Alþingi að herða skilyrði fyrir dvalarleyfi erlendra námsmanna. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Vildi ekki fara eftir tvö ár á Ís­landi: „Ég var bara grát­andi yfir að vera að fara heim“ Jurgita Statkevicius og eiginmaður hennar Svajunas hafa búið á Íslandi í kvartöld. Hann er svæfingalæknir og hún er ferðaráðgjafi og þau tala reiprennandi íslensku. Þau ferðast mikið og eru um þessar mundir að kynna grískar olíur fyrir landsmönnum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjart hæg­læt­is­veð­ur Landsmenn mega eiga von á hæglætis veðri í dag. Þó gæti rignt aðeins í nokkrum landshlutum um skeið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Fá yf­ir­ráð yfir 17 ol­íu­vinnslu­svæð­um til 100 ára Bandarískt olíufyrirtæki tekur yfir 17 olíuvinnslusvæði í Venesúela samkvæmt olíusamningi sem Bandaríkin og Venesúela gerðu nýverið. Fyrirtækið fær réttindi til olíuvinnslu til 100 ára. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Elds­neyt­ið hækk­aði um 20 til 31 krónu Tímabundin virðisaukaskattslækkun á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Lítrinn hækkaði um allt að 31 krónu þar sem hann var dýrastur fyrir. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Árásir á Kyiv og Ust-Luga í nótt Brynja Dögg Friðriksdóttir Lögregla við störf á vettvangi eftir árás á birgðastöð í útjaðri Kyiv, 29. ágúst sl. Myndin tengist fréttinni óbeint. AP / Dan Bashakov Átta hið minnsta voru drepnir og fimm særðust í miklum árásum rússneska hersins á Kyiv í nótt. Einn drepinn í Boryspil í Kyiv-héraði samkvæmt upplýsingum frá úkraínska hernum. Úkraínski herinn gaf út viðvaranir í gær vegna yfirvofandi flugskeytaárása. Þá kviknaði eldur í rússnesku hafnarborginni Ust-Luga við Finnlandsflóa eftir drónaárás Úkraínuhers. Héraðsstjórinn í Leningrad-héraði, Aleksandr Drozdenko, greindi frá árásinni í færslu á Telegram. Úkraínuher hefur áður gert árásir á höfnina, fyrr á þessu ári. Ust-Luga er ein mikilvægasta stórskipahöfn Rússa og þaðan er flutt olía, kol og áburður. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Danska sendi­ráð­ið í Sýr­landi opnað á ný Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur og utanríkisráðherra Sýrlands, Asaad al-Shaibani, opnuðu danska sendiráðið í Damaskus við hátíðlega athöfn í gær. Nokkrar Evrópuþjóðir lokuðu sendiráðum sínum í landinu þegar borgarastríðið braust út. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hnífa­árás á Times-torgi í New York Brynja Dögg Friðriksdóttir Lögregla við störf á vettvangi árásarinnar. AP/WABC / Uncredited Kona á fertugsaldri var drepin og karlmaður á sjötugsaldri særðist í hnífaárás á Times-torgi í New York í gær. Ekki er talið að um hryðjuverk sé að ræða en árásarmaðurinn, kona á fimmtugsaldri, er sögð vera andlega veik. Hún var vopnuð tveimur hnífum og áreitti fólk áður en hún stakk fórnarlömbin tvö af handahófi. Vitni lýsti því að konan hafi ógnað lögreglumönnum þegar þeir reyndu að stöðva hana. Hún hunsaði fyrirmæli lögreglu sem endaði með því að hún var skotin og lést síðar á spítala. Lögreglustjóri sagði að mikil hætta hefði skapast á torginu því mikill fjöldi fólks á leið um torgið á hverjum degi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dæmdur sekur fyrir morðið á Tupac Shakur Fyrrum gengismeðlimur í gengi í Los Angeles, Duane „Keffe D“ Davis, var fundinn sekur um að hafa myrt rapparann Tupac Shakur í gær. Hann á yfir höfði sér lífstíðardóm en fangelsisdómur yfir honum verður kveðinn upp í næsta mánuði. 1. september 2026 kl. 1:21ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ráð­herra banda­ríska hers­ins segir af sér Dan Driscoll, ráðherra bandaríska hersins, hefur sagt af sér embætti. Talið er að ósætti og samstarfsörðugleikar milli hans og Pete Hegseth varnarmálaráðherra sé ástæða uppsagnarinnar, en hvorki Driscoll né Hvíta húsið hafa gefið upp ástæður hennar. 31. ágúst 2026 kl. 23:28INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær End­ur­bætt inni­sund­laug loks­ins opnuð á Ak­ur­eyri Ný og endurbætt innisundlaug var tekin í notkun á Akureyri í liðinni viku. Laugin er mikil lyftistöng fyrir sundkennslu í bænum. 31. ágúst 2026 kl. 21:40ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hæsti­rétt­ur heim­il­ar Trump að klára veislu­sal­inn Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað Donald Trump forseta Bandaríkjanna að halda áfram með byggingu veislusalar á lóð Hvíta hússins. Framkvæmdirnar hlutu naumt samþykki fimm dómara af níu. 31. ágúst 2026 kl. 21:24INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þetta er lýð­ræð­is­legt val og maður verður að taka því“ Fólk sem Kastljós ræddi við er misánægt með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB. 31. ágúst 2026 kl. 21:12ÍÞRÓTTIR Fótbolti Stjarn­an nálg­ast efri hlut­ann Stjarnan vann Breiðablik í eina leik kvöldsins í Bestu deild

Share this article