Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og HR. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu og felur í sér endurgerð á götusniði Nauthólsvegar, Menntavegar og Menntasveigs ásamt gatnamótum og tengingum. Betri samgöngur í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur standa að verkinu og eru verklok áætluð í júlí 2028. Skrifað var undir verksamning við Gröfu og Grjót og Malbikunarstöðina Höfða sem áttu lægsta tilboðið eða 2,27 milljarða króna með virðisaukaskatti. Samningurinn er undir áætluðum kostnaði við verkið sem var metinn 2,9 milljarðar. Sjá einnig Engin þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut „Með framkvæmdunum við Nauthólsveg styrkjum við tengingu almenningssamgangna milli Fossvogsbrúar og Vatnsmýrarinnar með nýju sérrými. Um leið verða aðstæður fyrir gangandi og hjólandi bættar verulega, en áfram verður ein akrein fyrir bílaumferð í hvora átt. Framkvæmdirnar skapa jafnframt tækifæri fyrir Veitur til að endurnýja lagnir sínar,“ segir Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu. Innifalið í verkinu er gerð Borgarlínustöðvar við HR. © Aðsend mynd (AÐSEND) Breytingarnar fela í sér að breikka þversnið Nauthólsvegar og að koma fyrir sérrými fyrir almenningssamgöngur í miðri götu, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð sem áfram verður 1+1. Innifalið í þessu verki er gerð Borgarlínustöðvar við HR, ný aðkoma að HR, ný aðkoma að Landhelgisgæslunni og ljósastýrð gatnamót í stað hringtorgs. Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði Borgarlínu við Nauthólsveg. © Aðsend mynd (AÐSEND) Opið fyrir alla umferð með hjáleiðum Í tilkynningu segir að opið verði fyrir alla umferð um svæðið með hjáleiðum yfir allan framkvæmdatímann og að áhrifum á bílastæði verði haldið í lágmarki. Ein bílaakrein í hvora átt verður opin eins og verið hefur og verða tengingar gerðar við stígana í Öskuhlíð og stoppistöðvar Strætó opnar allan tímann en færðar eftir framvindu verksins. Framkvæmdirnar við Nauthólsveg og HR koma í beinu framhaldi af Fossvogsbrú sem nú er í smíðum og áætlað er að verði tilbúin til notkunar sumarið 2028. Brúin verður 270 metrar á lengd og mun tengja suðurhluta höfuðborgarsvæðisins við miðborgina. Brúin, líkt og framkvæmdirnar við Nauthólsveg og HR, er hluti af fyrstu lotu Borgarlínunnar og er ætluð almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsaksturs lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs.