Innlent | mbl | 1.9.2026 | 16:10 „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Aukin þörf er fyrir vandaða blaðamennsku, að mati Valgerðar. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Eyþór/AFP Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ekki við Sýn að sakast „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn » Fleiri tengdar fréttir Staðan á fjölmiðlamarkaði er grafalvarleg fyrir íslenskt samfélag. Töluvert vantar upp á að stjórnmálin, atvinnulífið og almenningur átti sig á því hversu mikilvægt hlutverk vandaðrar blaðamennsku er. Þetta segir Valgerður Anna Jóhannsdóttir, prófessor og umsjónarmaður náms í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, aðspurð. Frétt af mbl.is Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast Aukin þörf fyrir vandaða blaðamennsku Hún segir þróunina á íslenskum fjölmiðlamarkaði undanfarin ár vera mjög alvarlega. Tíðindin í gær þegar ákveðið var að leggja niður sjónvarpsstöð Sýnar hafi ekki komið stórkostlega á óvart, sérstaklega eftir að ljóst varð að ekkert yrði af kaupum Símans á Sýn. Frétt af mbl.is „Dagurinn í dag er sorgardagur“ „Hins vegar er þetta grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag. Við erum í þeirri stöðu að vera með eitt dagblað og eina stöð sem rekur sjónvarpsfréttir. Fyrir einhverjum áratugum vorum við með fimm til sjö dagblöð og tvær öflugar útvarps- og sjónvarpsstöðvar. Ekki hefur Íslendingum fækkað á þessu tímabili og ekki hefur þörfin fyrir vandaða blaðamennsku minnkað, þvert á móti hefur hún aukist,“ bendir Valgerður Anna á. Frá síðasta sjónvarpsfréttatíma sýnar í gær. mbl.is/Eyþór „Framboðið af efni er til þess að æra óstöðugan en framboðið af vönduðum, sannreyndum upplýsingum af vandaðri blaðamennsku, sem veitir það aðhald sem þarf í lýðræðissamfélögum, það er ekki að aukast,“ bætir hún við. Frétt af mbl.is „Ástæða til að hafa verulegar áhyggjur“ „Mér finnst stundum talsvert vanta upp á að bæði pólitíkin, atvinnulífið og almenningur átti sig á því hversu mikilvægt þetta hlutverk er. Þetta er ákveðin samfélagsleg þjónusta sem blaðamennskan sinnir, sem er kannski ekki auðvelt að koma fyrir í einhverju Excel-skjali hjá einstaka fyrirtæki.“ Þörf á sátt í tengslum við RÚV Spurð segir hún ekkert eitt geta leyst vandann sem sé til staðar. Ýmislegt sé verið að reyna á alþjóðavettvangi, til dæmis við að ná böndum á samfélagsmiðla og gervigreind sem hirði miskunnarlaust efni af ritstýrðum fjölmiðlum og noti án þess að greiða fyrir. Á sama tíma sé verið að „nappa af fjölmiðlum“ auglýsingatekjum og áhorfendum. Ná þarf lendingu varðandi RÚV og stöðu þess á auglýsingamarkaði, að mati Valgerðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hún nefnir einnig að ná þurfi lendingu varðandi RÚV og fyrirferð þess á fjölmiðlamarkaði þegar kemur að auglýsingum, þótt ástæðan fyrir hremmingunum núna sé ekki Ríkisútvarpið eitt og sér. „Mér heyrist að flestir séu á því að það þurfi að vera hér öflugt almannaútvarp en fyrirferðin á auglýsingamarkaði, það þarf að ná einhverri samfélagslegri sátt um það.“ Frétt af mbl.is Ekki við Sýn að sakast Gengur ekki að ausa peningum í samfélagsmiðla Valgerður nefnir að skoðanakannanir sýni ítrekað að fólk treystir ritstýrðum fjölmiðlum betur en samfélagsmiðlum. Í ljósi þess verði fólk að horfast í augu við að það kosti peninga að búa til góðar og vandaðar fréttir og samfélagsumfjöllun. Fyrirtæki og atvinnulífið þurfi líka á því að halda að aðhald sé með stjórnvöldum og öðrum fyrirtækjum. Þess vegna sé ekki hægt að ausa öllum auglýsingapeningunum í samfélagsmiðla. Facebook er í eigu Meta. AFP/Kirill Kudryavtsev Ekki gott ef Vísis-fólk þarf að hlaupa hraðar Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, sagði í samtali við mbl.is í gær að breyttar neysluvenjur almennings hefðu átt sinn hlut í brotthvarfi fréttastofunnar. Frétt af mbl.is „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Spurð út í þetta segir Valgerður að vissulega eigi línuleg dagskrá undir högg að sækja og að í sínum huga sé ekki aðalatriðið hvaða miðill sé notaður til að miðla vönduðum fréttaflutningi og blaðamennsku, heldur að fólk eigi kost á slíku efni. Í því samhengi bendir hún á að óljóst sé hvort fólkinu sem var sagt upp á fréttastofu Sýnar verði endurraðað á Vísi og Bylgjunni við að segja fréttir þar. Valgerður Anna Jóhannsdóttir. Hún vísar í kannanir um að sérstaklega ungt fólk vilji fá upplýsingar og fréttir í myndrænu formi. Slíkar fréttir hafi verið birtar á Vísi úr sjónvarpsfréttum Sýnar. „Ef þau stórefla Vísi og fjölga þar, þá er það ókei. Ef það er ekki niðurstaðan, heldur sú að þeir sem fyrir eru á Vísi þurfi að hlaupa hraðar, og nógu hratt þurfa þau nú að hlaupa, þá finnst mér það ekki góð niðurstaða.“ Frétt af mbl.is Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Fréttamaðurinn Kristján Már Unnarsson við upptökur á síðasta fréttatíma Sýnar í gær. mbl.is/Eyþór Þörf á samkeppni Almennt segir Valgerður brotthvarf sjónvarpsstöðvar Sýnar fela í sér ákveðin tímamót og að eftirsjá sé að fjölmiðlinum. Hún segir jafnframt að ekki sé gott fyrir RÚV að búa við enga samkeppni, enda haldi hún mönnum á tánum. Miklu máli skipti fyrir almenning að geta heyrt fjölbreytt sjónarmið og nálgun mismunandi fréttamiðla. Vonandi veki staðan núna fólk til umhugsunar um hvert skuli stefna. „Ef þessir stóru einkareknu miðlar taka upp á því að deyja drottni sínum smám saman þá verður það ekkert auðveldlega endurreist,“ varar hún við. Frétt af mbl.is Logi: „Vond og dapurleg tíðindi“ Íslendingar á þjóðhátíðardegi sínum, 17. júní. mbl.is/Eyþór Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ekki við Sýn að sakast „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Umsögn Íslands enn í gildi að mati ESB Kaupa miðjumanninn á yfir 20 milljarða Nemendur MS sameinast í sorginni „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Segja stöðuna betri en áður á þessari öld Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast Fellir frávísun Skúla úr gildi Ekki vera í kapphlaupi um stærstu yfirlýsingarnar Einn fluttur á slysadeild með reykeitrun Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Mun krefja fjármálaráðherra svara Eldur í bíl á Arnarnesvegi Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýjast á mbl.is » Umsögn Íslands enn í gildi að mati ESB Kaupa miðjumanninn á yfir 20 milljarða Nemendur MS sameinast í sorginni „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Segja stöðuna betri en áður á þessari öld Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Myndir: Ljót skemmdarverk á Meistaravöllum Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Ekki vera í kapphlaupi um stærstu yfirlýsingarnar Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Mun krefja fjármálaráðherra svara Eldur í bíl á Arnarnesvegi Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili