Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Í makríl í norskri lögsögu

Read Full Article →

Makrílvertíðin er á síðustu metrunum þessa dagana. Hún hófst seint og lýkur snemma enda kvótinn í sögulegri lægð. Veiðin hefur dottið niður í Síldarsmugunni og Vilhelm Þorsteinsson EA var í gær á landleið með um 700 tonn í tveimur holum. Sigurður VE, uppsjávarskip Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, á einna mestan kvóta eftir. Hann hafði fært sig inn í norsku lögsöguna eftir dræma veiði í Smugunni. Jóhannes Danner, skipstjóri á Sigurði VE, sagðist vera kominn með tæp 100 tonn þegar haft var samband við hann í gær. Fiskurinn er góður og meðalþyngdin 550 grömm. Þó er talsverð áta í honum en engu að síður hið ágætasta hráefni. „Menn eru búnir að keyra um þrjá daga í Smugunni án þess að fá neitt. Við erum núna inni í norsku lögsögunni og flestir aðrir á leiðinni hingað. Við vitum að það er fiskur hér,“ sagði Jóhannes. Í gær voru í norsku lögsögunni auk Sigurðar VE Víkingur AK, Svanur RE og Jón Kjartansson SU. Sigurður VE á enn eftir 3.000 tonn óveidd en flestir aðrir eru á lokametrunum. Sigurður VE. Mynd Óskar P. Friðriksson Dauft yfir vertíðinni „Við megum taka einn þriðja af kvótanum innan norsku lögsögunnar og þurfum ekki að landa í Noregi strax. Stefnan er ekki sú að landa í Noregi en það verður að koma í ljós hvað verður. Ég er sjálfur í fyrsta túr en mér heyrist á flestum að það hafi verið fremur dauft yfir þessari makrílvertíð. Það hefur verið minna í Smugunni en í fyrra þegar veiði var góð þar. Síðasta ár kom öllum á óvart fyrir það hve góð veiði var í Smugunni. En það var líka mun hlýrri sjór þar í fyrra en núna og munar þar alveg rúmlega einni gráðu. Það hefur áhrif á makrílinn. Það var makríll í upphafi inni í íslensku lögsögunni en skipin hófu seint veiðar út af litlum kvóta. Menn vildu bíða með að fara af stað út af litlum kvóta og sækja þá frekar betra hráefni síðar.“ Jóhannes segir að reynslan sé sú að hráefnið verði alltaf betra og fiskurinn stinnari því lengra sem líður á sumarið. „Það er svolítil áta í honum hérna Noregsmegin. Meðalvigtin er um 550 grömm svo þetta er flottur fiskur. Við erum að vonast eftir að ná núna 700-900 tonnum, það væri óskastaða. En það er ekki komið um borð, það þarf að veiða þetta,“ segir Jóhannes. Við tekur norsk-íslenska síldin þegar makrílveiði lýkur. Svo bíða allir spenntir eftir næsta loðnuleiðangri og hvort Hafrannsóknastofnun staðfesti kvótann. „Við höfum séð það síðustu árin að það er ekkert öruggt í þeim efnum.“

Share this article