Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hótelið lokað í daga eða vikur eftir brunann

Read Full Article →

Ferðamenn sem lögðust til svefns á Hótel Skjaldbreiði við Laugarveg í Reykjavík í gærkvöld vakna í dag á öðrum hótelum í eigu sömu hótelkeðju. Starfsmenn fóru strax í það að koma fólkinu út og finna því gistingu annars staðar þegar eldur kviknaði í kjallara hússins. Tveir voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun og einn var handtekinn vegna eldsvoðans. Auk Hótels Skjaldbreiðar er fatabúðin Andrá í húsinu. Kristófer Oliversson er forstjóri Center hotels sem eiga og reka Hótel Skjaldbreið. „Það var næturvörður á hótelinu og komu strax þrír aðrir starfsmenn af nærliggjandi hótelum. Það var mjög hratt brugðist við, bankað á öll herbergi og fólki komið.“ „Við gátum komið þeim á önnur hótel hjá okkur en þau fara og sækja farangur sinn með morgninum.“ Hótelgestir sem gistu á Hótel Skjaldbreiði í miðbæ Reykjavíkur og þurftu að yfirgefa það vegna bruna fengu inni á öðrum hótelum Center hotels. Forstjórinn segir að það geti tekið einhverja daga eða vikur að þrífa og gera við. Það verður bið á því að gestir verði innritaðir á Hótel Skjaldbreið. „Þetta hótel verður náttúrulega lokað í einhverja daga eða jafnvel vikur. Það er brunalykt og þrif og annað slíkt. Það er alltaf slæmt. Þetta eru 33 herbergi af rúmlega þúsund herbergjum þannig að við komumst alveg í gegnum þetta.“ Fólk sem á bókaða gistingu á Hótel Skjaldbreiði á næstunni fær inni á öðrum hótelum í eigu Center hotels meðan unnið er að því að koma Skjaldbreiði aftur í rekstur. „Það er fyrst og fremst það, þrif og viðgerðir. Tjónið er í kjallaranum. Svo fylgir þessum bruna reyklykt og annað sem þarf að þrífa út sem getur verið mismunandi erfitt.“ Hótelgestir sem gistu á Hótel Skjaldbreiði í miðbæ Reykjavíkur og þurftu að yfirgefa það vegna bruna fengu inni á öðrum hótelum Center hotels. Forstjórinn segir að það geti tekið einhverja daga eða vikur að þrífa og gera við. Bjarki Magnússon tók upp myndskeiðin sem fylgja fréttinni.

Share this article