Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Heiðar: Rógsherferð gegn mér

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 2.9.2026 | 11:05 Heiðar: Rógsherferð gegn mér Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka og fyrrverandi forstjóri Sýnar. mbl.is/RAX Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sýn Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Jón Skaftason hættir í stjórn Sýnar Reynir ekki aftur við stjórnarsæti í Sýn - Þrjár konur í framboði Dregur framboð sitt til baka vegna afarkosta OR Segir ekki deilt um umboð stjórnar » Fleiri tengdar fréttir Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka og fyrrverandi forstjóri Sýnar, segir rógsherferð rekna gegn sér í tengslum við sölu hans á 12,72% hlut í Sýn í júlí 2022. Hann segir ekkert vera til í þeim málatilbúnaði sem nú beinist gegn honum en kaupandi hlutarins, Gavia Invest, hefur höfðað skaðabótamál gegn Heiðari. Er honum gert að hafa búið yfir innherjaupplýsingum og haldið þeim eftir um stöðu félagsins við söluna. Að mati Gavia hafi Heiðari mátt vera ljóst að verulegt tekjufall væri fram undan hjá Sýn. Heiðar vísar því á bug, sem hann segir ýjað að, að meint brot hans hafi verið tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins (FME) og bendir á að FME meti hæfi stjórnarmanna kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja gaumgæfilega. „Ég er stjórnarformaður Íslandsbanka. FME metur hæfi viðkomandi mjög gaumgæfilega til að vera í stjórn kerfislega mikilvægs fjármálafyrirtækis. Hvað eru miklar líkur á því að það séu einhver ókláruð mál hjá FME gagnvart mér og ég geti orðið formaður stjórnar eins stærsta fjármálafyrirtækis landsins?“ spyr Heiðar. Frétt af mbl.is Stjórn Sýnar tilkynnti málið til FME Frétt af mbl.is Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Skipulögð herferð Heiðar segir málið í heild sinni vera hluta af rógsherferð gegn sér og gagnrýnir hvernig fjölmiðlar hafi fjallað um það. „Þetta er rógsherferð og það er ekkert til í þessum málatilbúnaði þeirra, ekki neitt.“ Hann segir tímasetningu frétta af málinu benda til þess að um skipulagða herferð sé að ræða og nefnir þar sérstaklega tilkynningu frá Sýn og fréttaflutning sem fylgdi í kjölfarið. „Það er nóg að horfa á tímasetningarnar á þessum fréttum og hvernig þær birtast ein af annarri. Svo kemur einhver mjög sérkennileg tilkynning frá Sýn um að eitthvað sé en samt ekki. Þá koma fullskrifaðar greinar 15 mínútum seinna frá Rúv og fleirum. Þannig að þetta er algjörlega skipulögð herferð.“ Reynir Finndal Grétarsson, meirihlutaeigandi Gavia Invest. mbl.is/Eggert Jóhannesson Jók við hlut sinn sjö vikum áður Heiðar segir að í júní 2022 hafi hann setið vinnufund með lykilstjórnendum Sýnar þar sem framtíðarhorfur félagsins voru ræddar. „Við töldum að gengi félagsins gæti orðið yfir 100 og nálgast 150 á næstu þremur árum.“ Í byrjun júní, rúmum sjö vikum áður en hann seldi hlut sinn, hafði hann aukið við hlut sinn með kaupum á tveimur milljónum hluta á genginu 57,5 krónur á hlut. „Ég sel síðan í júlí, vegna þess að læknar sögðu mér, eftir alvarleg veikindi, að ég mætti ekki vinna meira.“ Frétt af mbl.is Heiðar selur allt í Sýn Krafðist hluthafafundar daginn eftir tilkynningu Heiðar gekk frá sölu 12,72% hlutarins til Gavia Invest á genginu 64 krónur á hlut helgina 23. og 24. júlí 2022 og nam kaupverðið tæpum 2,2 milljörðum króna. Greint var frá sölunni og starfslokum Heiðars sem forstjóra Sýnar 25. júlí. Daginn eftir krafðist Gavia Invest þess að ný stjórn yrði kjörin í félaginu. Heiðar leggur áherslu á að hann hafi hvorki leitað að kaupendum að hlut sínum né haft frumkvæði að viðskiptunum. „Ég var ekki með þessa hluti. Ég hafði ekki samband við þessa kaupendur og bað þá um að kaupa af mér. Þeir hringdu bara upp úr þurru í gegnum miðlun banka og vildu kaupa og nefndu eitthvað verð, ég nefndi annað verð og viðskiptin gengu í gegn. Ég hafði ekki hugmynd um hverjir voru að kaupa af mér og ég var ekki að reyna að selja þeim einhverja sögu eða neitt, ég hafði mikla trú á þessu fyrirtæki.“ Frétt af mbl.is Gavia Invest kaupir 15% í Sýn Fjórir af fimm stjórnarmönnum endurkjörnir Hluthafafundur fór fram 31. ágúst 2022, rúmum fimm vikum eftir söluna. Þar var stjórn félagsins kjörin að nýju. Jón Skaftason, sem fór fyrir Gavia Invest, kom nýr inn í stjórnina en fjórir af fimm stjórnarmönnum fyrri stjórnar voru endurkjörnir. Heiðar segir þessa atburðarás skipta máli í samhengi við þann málatilbúnað sem nú beinist gegn honum. „Í grunninn er þetta þannig að það eru aðilar sem kaupa rekstur og taka stjórn á rekstrinum. Fjórum árum seinna eru þeir búnir að misfara algjörlega með reksturinn og þá ætla þeir að fá endurgreitt. Það er merkilegt að Gavia Invest nánast tvöfaldar verðmæti Controlant í bókum Sýnar sex mánuðum eftir að ég sel en þeir halda nú fram að ég hafi verið að ofspá fyrir um gengi þess fyrirtækis.“ Heiðar segir jafnframt að í leiðinni séu þeir að reyna að hafa af honum mannorðið. „Þeir kaupa þetta, taka strax við stjórninni eftir að ég hætti, sem gerðist bara á nokkrum vikum, klúðra rekstrinum og ætla núna að fara að reyna að kenna mér um það.“ Tengdar fréttir Sýn Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Jón Skaftason hættir í stjórn Sýnar Reynir ekki aftur við stjórnarsæti í Sýn - Þrjár konur í framboði Dregur framboð sitt til baka vegna afarkosta OR Segir ekki deilt um umboð stjórnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ísland og ESB speglað í erlendum miðlum Sigurður Már Jónsson Áfram Ísland tækifæranna! Fleira áhugavert Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ferðabann við garðana því þeir eru „vinnusvæði“ Heiðar: Rógsherferð gegn mér Umsókn Íslands enn í gildi að mati ESB Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Stjórn Sýnar tilkynnti málið til FME Gervigreindin er orðin milliliður Gullöld eftir nei Tinna gengur til liðs við Sjóvá Enn lækkar hlutabréfamarkaðurinn Volvo lokar í Stokkhólmi Daði nýr í framkvæmdastjórn Coripharma 1,4 milljarða króna tap atNorth Tapið þrefalt hærra en tekjur Útflutningur á áli er að aukast á ný Tinna gengur til liðs við Sjóvá Tapið þrefalt hærra en tekjur Enn lækkar hlutabréfamarkaðurinn Gullöld eftir nei Daði nýr í framkvæmdastjórn Coripharma Volvo lokar í Stokkhólmi Markaðsvirði Shein lækkað um nær 75% á fjórum árum Spáir 5,5% atvinnuleysi í byrjun næsta árs „Mikilvægi norræns samstarfs fyrir Ísland vex stöðugt“ Útflutningur á áli er að aukast á ný Endaði á að moka ofan í holuna Kauptækifæri á fasteignamarkaði American Airlines snúa aftur til Íslands Stracta-hótelin á Hellu til sölu Volvo lokar í Stokkhólmi Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Mun draga úr framboði leiguíbúða Tinna gengur til liðs við Sjóvá Hagnaður Sýnar jókst um 39% Orbital kaupir lyfjaheildsöluna Alvogen Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ísland og ESB speglað í erlendum miðlum Sigurður Már Jónsson Áfram Ísland tækifæranna! Fleira áhugavert „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ „Stemningin var hræðslan við breytingar“ Ísland dregist aftur úr í netöryggi Kynferðisofbeldismálum snarfjölgar í Ceuta Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Stjórn Sýnar tilkynnti málið til FME Gervigreindin er orðin milliliður Gullöld eftir nei Tinna gengur til liðs við Sjóvá Enn lækkar hlutabréfamarkaðurinn Volvo lokar í Stokkhólmi Daði nýr í framkvæmdastjórn Coripharma 1,4 milljarða króna tap atNorth Tapið þrefalt hærra en tekjur Útflutningur á áli er að aukast á ný Tinna gengur til liðs við Sjóvá Tapið þrefalt hærra en tekjur Enn lækkar hlutabréfamarkaðurinn Gullöld eftir nei Daði nýr í framkvæmdastjórn Coripharma Volvo lokar í Stokkhólmi Markaðsvirði Shein lækkað um nær 75% á fjórum árum Spáir 5,5% atvinnuleysi í byrjun næsta árs „Mikilvægi norræns samstarfs fyrir Ísland vex stöðugt“ Útflutningur á áli er að aukast á ný Endaði á að moka ofan í holuna Kauptækifæri á fasteignamarkaði American Airlines snúa aftur til Íslands Stracta-hótelin á Hellu til sölu Volvo lokar í Stokkhólmi Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Mun draga úr framboði leiguíbúða Tinna gengur til liðs við Sjóvá Hagnaður Sýnar jókst um 39% Orbital kaupir lyfjaheildsöluna Alvogen

Share this article