- What: Iceland lags behind in cybersecurity implementation
- Impact: Delayed adoption of EU NIS2 regulations
Innlent | Morgunblaðið | 2.9.2026 | 11:00 Ísland dregist aftur úr í netöryggi Sæstrengur lagður mbl.is/Kristinn Ómar Friðriksson [email protected] Setja bókamerki „Ísland hefur dregist aftur úr öðrum Evrópuþjóðum hvað varðar netöryggi og innleiðingu netöryggisregluverks,“ segir í umsögn Fjarskiptastofu um fyrirhugaða grænbók stjórnvalda um fjarskipti og netöryggi en forsamráð um gerð grænbókarinnar hefur staðið yfir í sumar í samráðsgátt. Í umfjöllun Fjarskiptastofu er því haldið fram að „sein innleiðing“ á NIS2-tilskipun Evrópusambandsins um net- og upplýsingaöryggi hér á landi sé fyrst og fremst afleiðing skorts á forgangsröðun og stefnumótun á sviði netöryggis. „Athygli hlýtur að vekja að í fjármálaáætlun 2027-2031 er ekki gert ráð fyrir innleiðingu NIS2 né öðrum mikilvægum þáttum er lúta að því að efla umgjörð netöryggis hérlendis. Á sama tíma er ljóst að netöryggisógnin vex gríðarlega, m.a. með beitingu gervigreindar,“ segir Fjarskiptastofa. Jafnramt segir að íslenskum stjórnvöldum ætti að vera ljós sú áhætta sem felist í takmarkaðri getu mikilvægra innviða hérlendis til að verjast netógninni, „því fyrir liggur að nokkuð stór hluti þeirra aðila sem þegar eru útnefndir sem mikilvægir innviðir hefur ekki gert fullnægjandi nauðsynlegar ráðstafanir til að byggja upp stjórnkerfi netöryggis og má leiða líkum að því að þessir aðilar séu með ónóg viðbrögð við netógnum. Nauðsynlegt er að bregðast við þessu með afgerandi stefnumótun um netöryggismál þar sem sett eru metnaðarfull, tímasett og fjármögnuð markmið til að koma Íslandi úr þessari stöðu.“ Bendir Fjarskiptastofa á að niðurstöður eftirlits stofnunarinnar bendi til þess að á of mörgum stöðum séu vankantar á því að farið sé að gildandi netöryggislögum, þar sem lágmarkskröfur eru settar um áhættustýringu og viðbúnað og þar með sé netöryggi ábótavant. Átti að innleiða í október 2024 Innleiðing NIS2-netöryggistilskipunar ESB hefur staðið fyrir dyrum hér á landi í alllangan tíma en frestur ESB-ríkja til að innleiða hana rann út í október árið 2024. Henni er þó ekki að fullu lokið í öllum aðildarlöndunum. Ljóst er að tilskipunin verður mun umfangsmeiri en fyrri tilskipun sem hún leysir af hólmi og Fjarskiptastofa segir að veruleg fjölgun verði á aðilum sem munu falla undir regluverkið. Vara við gullhúðun 32 umsagnir hafa borist í samráðsgátt vegna grænbókarinnar og segir Viðskiptaráð í umfjöllun um tilskipunina að gæta þurfi hófs við innleiðingu hennar. Ráðið hafi varað ítrekað við gullhúðun EES-regluverks, þ.e. að við innleiðingu séu gerðar ríkari og víðtækari kröfur en leiði af viðkomandi EES-gerð. Míla tekur í sama streng og segir að forðast þurfi óþarfa gullhúðun. Mikilvægt sé „að forðast óþarfa séríslenskar viðbótarkröfur umfram það sem nauðsynlegt er til að uppfylla EES-skuldbindingar, nema sérstök og skjalfest íslensk áhætta réttlæti slíkar kröfur“. Fjarskiptastofa telur mikilvægt að tilskipunin verði innleidd sem fyrst og að gildistaka ásamt fullri fjármögnun verði eigi síðar en í ársbyrjun 2028. Í ítarlegri umfjöllun um fjarskipti og netöryggismál mælir hún með að metin verði þörf á sérstöku landsbundnu fjarskiptakerfi til þrautavara þegar alvarlegar truflanir eiga sér stað og stofnnet og raforkukerfi verða óvirk. „Ör þróun lágfljúgandi gervihnattakerfa kann að skapa nýja og hagkvæmari möguleika til slíkrar uppbyggingar,“ segir í umfjöllun Fjarskiptastofu. Korda ehf., sem er sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar frá og með seinustu mánaðamótum, rekur m.a. fjarskiptasæstrengina þrjá sem tengja Ísland við Evrópu. Í umsögn Korda er m.a. minnt á stórfellda uppbyggingu gagnavera á Íslandi fyrir erlenda viðskiptavini sem nýtist nú þegar til aukinnar hagkvæmni við uppbyggingu og nýtingu fjarskiptainnviða. Einnig sé jákvætt að uppbyggingin auki líkur á uppsetningu á alþjóðlegum skýjaþjónustum í íslenskum gagnaverum. „Slíkt myndi augljóslega auka verulega áfallaþol Íslands fyrir rofi á alþjóðlegum fjarskiptatengingum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Liverpool reyndi við bakvörð Chelsea Heiðar: Rógsherferð gegn mér Sumarið gott hjá hótelunum „Búðin var full af reyk“ Ísland dregist aftur úr í netöryggi Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland dregist aftur úr í netöryggi Nemendur MS sameinast í sorginni Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Ráðherra vill taka „smátíma“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ríkisstjórnin fallin yrði kosið nú Allt tiltækt slökkvilið kallað út Meira til leigjenda en til kaupenda 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýjast á mbl.is » Liverpool reyndi við bakvörð Chelsea Heiðar: Rógsherferð gegn mér Sumarið gott hjá hótelunum „Búðin var full af reyk“ Ísland dregist aftur úr í netöryggi Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er ekki hollt“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Allt þetta tal með „kassann út“ Vísar tali um skyldubólusetningu á bug Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Ráðherra vill taka „smátíma“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ríkisstjórnin fallin yrði kosið nú Allt tiltækt slökkvilið kallað út Meira til leigjenda en til kaupenda 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili