Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.9.2026 | 13:45 Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Geir telur það ljóst að þessar aðgerðir hafi ekkert með velferð dýranna að gera heldur sé tilgangurinn að valda þeim ótta, meiðslum og dauða. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Enn á ný var brotist inn í svínabú Stjörnugríss að Brimnesi á Kjalarnesi í nótt. Í þetta sinn var rúða brotin og farið inn um hana. Að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu voru verksummerki með svipuðum hætti og við fyrra innbrot. Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar. Afleiðingarnar voru þær að dýrin gengu laus um húsin og sum þeirra komust út á tún við búið. Fram kemur að afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin séu mjög alvarlegar. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði og þurfti að aflífa. Þá eru fjölmörg dýr særð og með áverka. Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, minni mjólkurframleiðslu hjá gyltum og mögulegra fósturláta. Frétt af mbl.is Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Hefur verið kært til lögreglu Ljóst er að smitvarnir búsins voru alvarlega rofnar þar sem dýr úr mismunandi hópum blönduðust saman og sum þeirra fóru út fyrir húsakynni búsins. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis hafa jafnframt verið upplýst um atvikið. „Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna. Hvað gengur þessu fólki eiginlega til? Við töldum í einfeldni okkar að þeir sem stóðu að fyrra innbrotinu hefðu ekki gert sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna og að vanþekking þeirra hefði orðið þess valdandi að úr varð dýraníð af verstu sort,“ er haft eftir Geiri Gunnari Geirssyni, forstjóra Stjörnugríss. „Í ljósi nýlegra atburða á Reykjabúinu og Dalsbúinu, auk þessa endurtekna innbrots í svínabú okkar, tel ég hins vegar ljóst að þessar aðgerðir hafa snúist upp í andhverfu sína þ.e.a.s. virðast ekkert með umhyggju fyrir dýrum eða velferð þeirra að gera. Þvert á móti er engu líkara enn að tilgangurinn sé að valda dýrum ótta, meiðslum og dauða. Í ljósi alvarleika málsins hvetjum við þá sem stóðu að þessum verknaði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Jafnframt biðjum við alla sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Úrslitin standa Svimandi há skólagjöld hjá börnum Harrys og Meghan Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Bandaríkjunum stjórnað af „óhæfasta fólkinu“ „Líkaminn er ekki musteri heldur skemmtigarður“ Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Upptaka brotaþola týndist hjá lögreglu Ísland dregist aftur úr í netöryggi Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði Hvernig myrða þeir svo sannfærandi sé? Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Ráðherra vill taka „smátíma“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ríkisstjórnin valdamesta aflið Líkamsrækt í Seðlabankanum Ríkisstjórnin fallin yrði kosið nú Allt tiltækt slökkvilið kallað út Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýjast á mbl.is » Úrslitin standa Svimandi há skólagjöld hjá börnum Harrys og Meghan Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Bandaríkjunum stjórnað af „óhæfasta fólkinu“ „Líkaminn er ekki musteri heldur skemmtigarður“ Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ferðabann við garðana því þeir eru „vinnusvæði“ Ríkisstjórnin valdamesta aflið „Betri bragur“ að afturkalla ESB-umsóknina formlega Allt tiltækt slökkvilið kallað út Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Ráðherra vill taka „smátíma“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ríkisstjórnin valdamesta aflið Líkamsrækt í Seðlabankanum Ríkisstjórnin fallin yrði kosið nú Allt tiltækt slökkvilið kallað út Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili

Share this article