Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn í vikunni. Páll Jónsson landaði 103 tonnum á mánudag og Sighvatur tæpum 80 tonnum í morgun. Aflinn er mest langa hjá báðum skipum en einnig er um að ræða töluvert af keilu og síðan öðrum tegundum. Skipstjórar beggja skipa töluðu um að einstök veðurblíða hefði verið á miðunum. Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að veiðin hefði verið góð þegar hann ræddi við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Við fengum aflann í fimm og hálfri lögn. Það var byrjað við Surtsey á Stórahrauni, síðan var haldið á Holtshraun austan við Eyjar, þá var haldið í Háfadýpið og endað á Landsuðurhrauni. Að undanförnu hefur öll áhersla verið lögð á að veiða keilu og löngu en nú er komið nýtt kvótaár og þá verður væntanlega farið að kíkja eitthvað á þorsk og ýsu,” sagði Jónas Ingi. Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, er sáttur við veiðina í túrnum. „Aflinn hjá okkur er kokteill en það er mest af löngu og síðan keilu. Aflinn fékkst í fimm lögnum. Við byrjuðum vestan við Reynisdýpið, síðan var haldið á Síðugrunn og endað á Landsuðurhrauninu. Hér fagna menn auðvitað nýju kvótaári og það er tilhlökkunarefni að geta farið að hugsa um þorsk og ýsu í einhverjum mæli,” sagði Óli Björn.