Innlent | mbl | 2.9.2026 | 15:33 „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Fjölskyldufaðir á sextugsaldri var stunginn fyrir utan skemmtistað í Reykjavík. Samsett mynd/Colorbox. Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Fjölskyldufaðir á sextugsaldri varð fyrir tilefnislausri stunguárás í porti skemmtistaðar í Reykjavík snemma í júlí. Maðurinn var þar staddur ásamt bróður sínum, sem sleginn var með glasi í höfuðið þannig að sauma þurfti sárið á slysadeild eftir atvikið. Stungusárið liggur nærri úlnlið og fóru sinar í hendinni í sundur. Hann getur enn ekki stjórnað hendinni eða úlnliðnum en vonast til þess að fá hreyfigetu og tilfinningu að nýju eftir um sex mánuði. Maðurinn gegnir ábyrgðarstöðu og hefur ekki getað unnið frá því árásin átti sér stað. Lögregla staðfestir, eftir að hafa farið yfir myndbandsupptöku, að árásin hafi verið tilefnislaus. Hann vill ekki koma fram undir nafni af ótta við mennina sem réðust á hann sem hann segir að hafi verið erlendir. „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu og sem betur fer kærir lögregla mennina sjálfkrafa þar sem vopn var notað í árásinni. Ég myndi ekki vilja kæra svona sjálfur því þetta eru svona menn sem koma heim til þín,“ segir maðurinn. Var eitt spurningamerki Hann lýsir atburðarásinni þannig að bróðir hans, sem búsettur er úti á landi, hafi verið í Reykjavík og þeir hafi ákveðið að nýta tækifærið og hittast í miðbænum. „Við vorum staddir á skemmtistaðnum Irishman, ég og bróðir minn, og stóðum í portinu fyrir utan þar sem bróðir minn var að veipa. Skyndilega byrjuðu þrír menn að rífast við bróður minn og sögðust hafa verið með eitthvert borð þarna fyrir utan. Bróðir minn vissi ekki einu sinni um hvað þeir voru að tala, sagði ekki neitt og var eitt spurningamerki.“ „Áður en ég veit af er ég stunginn“ „Ég kem að þessu og sé að það er eitthvað vesen í uppsiglingu og segi við þá eitthvað á þá leið að við séum ekki að fara að rífast um eitthvað borð og bæti svo við: Þið takið bara þetta borð, ég skal bjóða ykkur upp á bjór og þá eru allir glaðir. Áður en ég veit af er ráðist á mig aftan frá, ég er stunginn og fell í jörðina. Augnabliki síðar stend ég upp, lít í kringum mig og þá voru þeir bara farnir, hlaupnir á brott,“ segir maðurinn. Hann segir árásarmennina hafa verið unga menn og að hann hafi séð að lögregla hafi auglýst eftir þeim í fjölmiðlum. Frekari upplýsingar um rannsóknina hafi hann ekki. Hann segir eflaust einhverja spyrja sig hvort hann hafi ekki átt einhverja sök í málinu því fólk trúi því vart að svona geti gerst að tilefnislausu. „En það er ekki þannig. Þetta er fáránleiki því þetta er það síðasta sem mér dytti í hug að ég myndi lenda í. Ég er bara venjulegur miðaldra heimilisfaðir sem á börn. Rólyndismaður og hófsamur drykkjumaður auk þess sem mér finnst slagsmál ákaflega heimskuleg,“ segir maðurinn. „Ekki nóg að passa sig“ Hann segist hugsi yfir atvikinu og þeirri hörku sem þar var sýnd. „Ég á börn og eftir samtöl mín við lögreglu, sem sagði að svona tilefnislausar árásir væru ekkert einsdæmi, velti ég því fyrir mér hvort það sé nóg að segja við þau, eins og sagt var við mig á sínum tíma, að passa sig. Það er ekki nóg að passa sig bara.“ Tveir sakborningar Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að tveir sakborningar hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Grunur leiki á því að maðurinn hafi verið stunginn með glerbroti. 13-16 árásir á mánuði Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að 13-16 líkamsárásir í miðbænum hafi endað á borði lögreglu í hverjum mánuði í júní, júlí og ágúst. Í tæplega helmingi tilfella voru árásarmennirnir með erlent ríkisfang. „En það sem vekur athygli í þessu þegar horft er til þess fjölda sem er í miðbænum að ferðamenn eru í engu tilviki grunaðir. Þetta er allt fólk sem er búsett eða dvelur hér á landi,“ segir Unnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Keppir ekki vegna deilu um greiðslur Verulegur munur á kostnaði við íþróttir barna Utanríkisráðherra hafi vanrækt sambandið við Bandaríkin „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Um tunglið, börn, geitunga og kýr Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markaðurinn sýndi engin viðbrögð Allt tiltækt slökkvilið kallað út Heiðar: Rógsherferð gegn mér Ráðherra vill taka „smátíma“ Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ríkisstjórnin valdamesta aflið Líkamsrækt í Seðlabankanum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýjast á mbl.is » Keppir ekki vegna deilu um greiðslur Verulegur munur á kostnaði við íþróttir barna Utanríkisráðherra hafi vanrækt sambandið við Bandaríkin „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Um tunglið, börn, geitunga og kýr Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Allt tiltækt slökkvilið kallað út „Stemningin var hræðslan við breytingar“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ríkisstjórnin valdamesta aflið Líkamsrækt í Seðlabankanum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili