Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að ný vatnsleiðsla til Vestmannaeyja hafi ekki enn verið prófuð. Leiðslan skemmdist í byrjun ágúst og enn ekki ljóst hvort hún er nothæf. Íris segir skýrt hver ber ábyrgð á tjóninu. Lögnin er ekki ætluð til að leiða vatn í Vestmannaeyjabæ heldur að vera til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina. Vestmannaeyjabær bíður enn eftir lokaskýrslu um tjónið en Íris segir alveg óumdeilt að leiðslan hafi skemmst við útlagningu og því skýrt hvar ábyrgðin liggi. Hún skemmist í útlagningu hjá Subsea 7 þannig að það er ekkert vafamál hvar lögnin skemmist og hvenær. Hún skemmdist ekki um borð í skipinu eins og voru einhverjar fréttir um. Hún skemmist þegar verið er að leggja hana út en við höfum ekki fengið lokaskýrsluna um nákvæmlega hvað gerðist og hvernig. En ábyrgðin er klárlega hjá útlagningaraðilanum. Átti að prófa lögnina í gær Ákveðið var að leggja leiðsluna þrátt fyrir skemmdirnar og sjá hvort hún ber vatn. Þrýstiprófanir á henni eru fyrirhugaðar um leið og veður leyfir. „Það átti að reyna að gera það í gær til að athuga hvort það sé möguleiki að koma einhverju í vatni í gegnum hana en það var bilun í tækjabúnaði sem varð til þess að það var ekki hægt að klára þá prófun.“ Vilja að ríkið borgi Íris segir að Vestmannaeyjabær haldi innviðaráðuneytinu upplýstu um öll skref málsins. Spurð hvort stjórnvöld ætli að auka fjárframlög segir hún að bæjaryfirvöld séu í samskiptum um það við ráðuneytið. „Við erum bara í þessu virka samtali um að við teljum að ríkið eigi að greiða fyrir almannavarnir tengdar Vestmannaeyjum eins og almannavarnir annars staðar.“ Bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum telur lögnina falla undir almannavarnir og vill að ríkið greiði fyrir hana. Eina vatnslögnin til Vestmannaeyja laskaðist í nóvember 2023 þegar akkeri togara rann út og lenti á henni. Ákveðið að leggja aðra leiðslu eins og þá sem skemmdist. Ríkið greiðir 800 milljónir króna, sem er helmingurinn af kostnaðinum við gerð leiðslunnar en svo bætist við kostnaður við að leggja hana.