Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Seldu Golfskálann á 790 milljónir

Read Full Article →

Stamina leitarsjóður keypti Golfskálann á 790 milljónir en greint var frá kaupunum síðasta sumar. Sjóðurinn keypti verslunina af stofnendum fyrirtækisins, þeim Hans Henttinen og Ingibergi Jóhannssyni. Hans Henttinen er sjálfur ekki á listanum yfir 150 fjármagnstekjuhæstu Íslendingana í fyrra en eiginkona hans, Ingunn Alda Sigurðardóttir, er þar með 271 milljón í fjármagnstekjur. Ingibergur Jóhannsson var þá með 268 milljónir. Fram kemur í ársreikningi Stamina að kaupverð eignarhluta í dótturfélagi hafi numið 790 milljónum. Sjá einnig Leitarsjóður kaupir Golfskálann Golfskálinn hóf starfsemi árið 2010 og rekur í dag verslun með golfvörur og heldur úti golfferðum til Spánar. Golfskálinn ehf., áður Helgi Einar Nonni ehf., velti ríflega 1,2 milljörðum króna í fyrra og hagnaðist um 124 milljónir. Eignir í árslok voru bókfærðar á 452 milljónir og eigið fé nam 144 milljónum. Á árinu voru ársverk ríflega 10. Fram kemur í ársreikningi að fall Play hafði veruleg áhrif á sölu golfferða og að félagið hafi reynt að bæta viðskiptavinum tjón þeirra sem ekki höfðu farið í golfferðir á vegum félagsins. Í kjölfarið hafi félagið gert samninga við önnur flugfélög til að bæta áðurnefnt tjón viðskiptavina og til að tryggja framkvæmd ferða í kjölfar gjaldþrotsins. Kári Steinn Karlsson er í dag framkvæmdastjóri Golfskálans en hann stofnaði Stamina-leitarsjóð árið 2024. Eignarhald félagsins er nú í höndum Kára og hóps fjárfesta. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.

Share this article