Innlent | mbl | 2.9.2026 | 21:09 „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Frá minningarstundinni í Háteigskirkju í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Banaslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Nemendur MS sameinast í sorginni Boða til minningarstunda Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg » Fleiri tengdar fréttir „Ég lærði það eina ferðina enn að með því að opna kirkjurnar og veita fólki vettvang og farveg fyrir sorg sína á þennan hátt er óumræðilega dýrmætt,“ segir Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur við Háteigskirkju, eftir minningarstund sem haldin var í kirkjunni í kvöld vegna fráfalls Benjamíns Guðmundssonar, sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi. Um 400 manns sóttu stundina í Háteigskirkju í kvöld. Á sama tíma fór fram minningarstund í Lágfellskirkju vegna Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur, sem lést í sama slysi og átti sínar heimaslóðir í Mosfellsbæ. Frétt af mbl.is Boða til minningarstunda Um 400 manns sóttu stundina í Háteigskirkju í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg 400 manns í kirkjunni „Þarna voru 400 manns í kirkjunni og það voru allir þessir unglingar og ungmenni, fólk sem við þekkjum úr okkar sókn, og svo aðrir sem fylgdu þessum ungmennum, þá sérstaklega Benjamín, sem var fermdur hjá okkur,“ segir Helga Soffía í samtali við mbl.is. Hún segir minningarstundina hafa tekist vonum framar. Ungmennin hafi fengið tækifæri til að hittast og syrgja saman, auk þess sem fjölmargir aðrir hafi sótt stundina. Kveikt var á kertum í kirkjunni og fólki var frjálst að leggja þau hvar sem er. Eftir formlegu stundina sat fólk áfram í kirkjunni í um klukkustund, í kyrrð, spjallaði saman og veitti hvert öðru stuðning, að sögn Helgu. Frétt af mbl.is Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Á sama tíma fór fram minningarstund í Lágfellskirkju vegna Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur, sem lést í sama slysi og átti sínar heimaslóðir í Mosfellsbæ. mbl.is/Eyþór Mikilvægt að skapa farveg fyrir sorg Hún segir reynsluna sýna mikilvægi þess að skapa fólki farveg fyrir sorg, og þá ekki aðeins þeim sem standa nánast hinum látna, enda snerti atburðir sem þessir samfélagið allt. „Almennir borgarar taka þetta virkilega nærri sér og eru kannski fólk sem á unglinga sem eru að byrja að keyra bíla – maður verður bara dálítið skekinn við svona fréttir.“ Í minningarstundinni var skipt á milli píanótónlistar, uppbyggilegra orða og bæna sem innihéldu nöfn ungmennanna þriggja sem létust í slysinu. „Það var grátið, það var brosað, það var beðið.“ mbl.is/Eyþór Tengdar fréttir Banaslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Nemendur MS sameinast í sorginni Boða til minningarstunda Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Góður leikur Elínar er liðið fór áfram Kerlínan nú rekin með 95% afköstum „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Myndir: Ósvikin hlaupagleði í Norðlingaholti Umræðan Meiri umræðu um menntamál Búverkin bíða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heiðar: Rógsherferð gegn mér Hámarksrefsing verði tvöfölduð Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ráðherra vill taka „smátíma“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Góður leikur Elínar er liðið fór áfram Kerlínan nú rekin með 95% afköstum „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Myndir: Ósvikin hlaupagleði í Norðlingaholti Umræðan Meiri umræðu um menntamál Búverkin bíða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Markaðurinn sýndi engin viðbrögð Ríkið borgar brúsann „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar