Innlent | Morgunblaðið | 2.9.2026 | 21:04 Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Logi telur þá sem talað hafi digurbarkalega eiga næsta leik. mbl.is/Eggert Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Markaðurinn sýndi engin viðbrögð „Enn eitt áfallið“ „Þetta er ekki hollt“ „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast » Fleiri tengdar fréttir „Jú, auðvitað er það að vissu leyti áfall og að minnsta kosti djúp vonbrigði,“ svarar Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra spurningu Morgunblaðsins um hvort það sé honum áfall að eftir brotthvarf sjónvarpsfréttastofu Sýnar sé aðeins ein slík eftir í landinu sem sé ríkismiðill. Rifjar ráðherra upp að hann hafi vaxið úr grasi og komist á fullorðinsaldur í umhverfi þar sem ríkið hafði einokun á bæði ljósvaka- og sjónvarpsmiðlum. „Og nú er staðan sú, að að minnsta kosti sjónvarpsfréttamiðillinn er bara orðinn einn og það er auðvitað afturhvarf til tíma sem maður vonaði að maður þyrfti ekki að upplifa aftur. Þannig að jú, það eru vonbrigði,“ segir Logi sem einnig ræddi við mbl.is í fyrradag og kvað tíðindin þá vond og dapurleg. Frétt af mbl.is Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Logi er minntur á að hann sé ekki fyrstur íslenskra ráðherra til að reyna að bæta úr erfiðu rekstrarumhverfi fjölmiðla landsins. Á sínum tíma hafi hann kynnt drög að lagabreytingum til úrbóta en Sýn þá varað við því að þær ráðstafanir, sem þá voru viðraðar, hrykkju ekki til sem nú sé að koma á daginn. Blasir ekki við að sú aðferð, sem menn hafa verið að reyna að nota undanfarin ár og þú ert að reyna að útvíkka, virkar ekki? „Við erum að minnsta kosti með þessum hugmyndum, sem við lögðum til, að formgera það með frumvörpum og nýjum þjónustusamningi við Rúv. og lögum um Rúv.,“ svarar ráðherra. „Við erum að minnsta kosti að tvö- til þrefalda þann stuðning sem hefur verið. Hvort það dugi til eða ekki, við þurfum að skoða það auðvitað alvarlega og við þurfum auðvitað að vera opin fyrir hugmyndum og þurfum að efna til samtals við meðal annars fjölmiðla af því að við erum náttúrulega í ótrúlega erfiðri stöðu,“ heldur hann áfram. Óáreiðanlegur brunnur Logi segir fyrri ríkisstjórnir hafa átt að grípa til mun sterkari aðgerða til að byrgja brunninn áður en barnið dytti þar ofan í og segir hann núverandi stjórnvöld horfa upp á samkeppni sem ógni hefðbundnari fjölmiðlum. „Hún er auðvitað að þróast á jafnvel meiri hraða en veruleiki sem við höfum alist upp við. Og við þær aðstæður þurfum við bara að grípa til einhverra ráðstafana,“ segir ráðherra. Samkeppnin sé ekki lengur milli innlendra miðla eingöngu og segir hann það ljóst að allir fjölmiðlar fari nú halloka gegn nýmiðlun á netinu. Frétt af mbl.is „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ „Þá er ég ekki að tala um fréttaflutning í stafrænu formi af því að ég held að það sé auðvitað […]. Ég er fyrst og fremst að hugsa um fréttaöflun í gegnum þessa samfélagsmiðla og jafnvel gervigreind sem er í augnablikinu að minnsta kosti bara spunagreind og í besta falli mjög óáreiðanlegur brunnur,“ segir Logi og er spurður hvort einhver leið sé til að sporna við hinni gríðarlegu sókn fyrirtækja á borð við Meta og Google. „Það er snúið, en við erum samt sem áður í samtölum við fjármálaráðuneytið um hvað hægt sé að gera í því, hvort hægt sé að skattleggja þessa tekjulind,“ svarar hann, „Vinna var komin af stað hjá OECD [Efnahags- og framfarastofnuninni] sem átti að samræma þessar leikreglur milli landa. Bandaríkjaforseti dró sig út úr því og þar með datt krafturinn dálítið úr því auðvitað og ég tók eftir því að Kanada íhugaði og var búið að undirbúa einhvers konar lög í þessa átt en dró í land með það.“ Ríkisútvarpið hefur stækkað við sig, bætt við sig fjölmiðlaformum og fjölgað rásum, svarað allri samkeppni um dagana, allt frá því að Stöð 2 hóf göngu sína fyrir 40 árum, aukið við auglýsingar og er auk þess komið með kostun ofan á fjárlagafé. Ráðherra er spurður hvort nú sé það ekki stjórnvalda að setja hömlur. „Einhver ástæða er fyrir því að engir ráðherrar – jafnvel þótt þeir hafi talað um það í kosningabaráttu og í stjórnarandstöðu – hafa gert nokkuð í því þegar til kastanna kemur,“ svarar Logi. „Samtöl okkar [í aðdraganda frumvarpsgerðarinnar] leiddu í ljós að ég held að það hafi verið mjög fáir af samkeppnisaðilum sem töldu að blátt bann, til dæmis við auglýsingum Rúv., myndi endilega laga stöðuna nægilega mikið. Frá því eru auðvitað undantekningar,“ heldur hann áfram. Segir Logi öll rök hníga að því að það að taka Rúv. af auglýsingamarkaði væri ekki annað en fugl í skógi fyrir hina íslensku miðlana sem nú streymi burt úr kerfinu. „Það er hið raunverulega vandamál. Þess vegna fórum við kannski þessa óhefðbundnu leið með það að taka hlutfall af auglýsingatekjum Rúv. og færa yfir í stuðning við einkareknu fjölmiðlana,“ segir hann og heldur áfram. Reyni ekki að kreista allt til sín „Ég minni líka á að við erum náttúrulega núna, bara þessa dagana og vikurnar, að vinna að nýjum þjónustusamningi við Rúv. og þar mun auðvitað birtast skýr vilji okkar til þess að Rúv. átti sig á því að sem stórum leikmanni á markaðnum ber miðlinum ekki síður að huga að því að við styrkjum innlent fjölmiðlaumhverfi gagnvart erlendum keppinautum, frekar en að reyna að kreista allt til sín sem mögulega er hægt, ég ætla bara að vera heiðarlegur með það. Miðað við núverandi stöðu tel ég að það allra versta í stöðunni væri að veikja Rúv. Og við munum samhliða þessum fjármunum aflétta lífeyrisskuldbindingum af Rúv., þannig að þau þurfa örugglega að grípa til einhverra aðgerða, en ég vil ekki veikja Rúv. Það verður bara einhver annar ráðherra að gera og væri þá nærtækast bara að benda á þá stjórnmálamenn sem hingað til hafa talað mjög digurbarkalega um þetta en aldrei gert neitt,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Markaðurinn sýndi engin viðbrögð „Enn eitt áfallið“ „Þetta er ekki hollt“ „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Góður leikur Elínar er liðið fór áfram Kerlínan nú rekin með 95% afköstum „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Myndir: Ósvikin hlaupagleði í Norðlingaholti Umræðan Meiri umræðu um menntamál Búverkin bíða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Viðbrögð við árás æfð með Bandaríkjaher Heiðar: Rógsherferð gegn mér Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Góður leikur Elínar er liðið fór áfram Kerlínan nú rekin með 95% afköstum „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Myndir: Ósvikin hlaupagleði í Norðlingaholti Umræðan Meiri umræðu um menntamál Búverkin bíða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkið borgar brúsann Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Bakslag fyr