Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.9.2026 | 22:45 Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Ráðherra hefur boðað 600 milljóna aukafjárveitingu vegna námsgagna. Íris gagnrýnir fyrirkomulag útgáfu en Þórdís segir allt horfa til betri vegar. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Anton/Hulda Margrét/Stjórnarráðið Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Inga tekur af skarið og setur símabann Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Beint: Íslensk námsgögn – hvað er til? Inga: Börnin hafa beðið of lengi » Fleiri tengdar fréttir Staða útgáfu námsgagna í íslenskum skólum er mjög slæm og fjárveitingar til málaflokksins hafa dregist verulega saman að raunvirði á undanförnum árum. Á sama tíma hefur skortur verið á prentuðu námsefni við upphaf skólaárs, þótt Miðstöð menntunar og skólaþjónustu segi þann vanda nú vera að leysast. Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, segir að þegar staðan hafi verið góð hafi þáverandi Námsgagnastofnun haft um 23 þúsund krónur til ráðstöfunar á hvern nemanda. Nú séu um sjö þúsund krónur til ráðstöfunar á hvern nemanda. „Það er fyrir öll námsgögn fyrir öll fög sem nemendur eru í,“ segir Íris. Þá sé það háð hentisemi ráðherra hvaða fjármagn finnst og stundum berist svarið með sms-skilaboðum. Frétt af mbl.is Námsgögn fjársvelt í áratugi Frétt af mbl.is Nýtt námsefni óaðgengilegra en gömlu bækurnar Frétt af mbl.is Í reynd hægt að tala um ríkiseinokun Segir PDF-útgáfu leið til að spara Íris segir að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, sem sér um útgáfu námsgagna, hafi ekki haft nægilegt fjármagn til þess að prenta allt það efni sem þörf sé á. Miðstöðin hafi þess vegna farið þá leið að gera námsefni aðgengilegt á PDF-formi þar sem heimildir leyfi. „Það er ekki út af því að þau eru með einhverja formlega rafræna stefnu, það er bara verið að reyna að spara til þess að geta framleitt það námsefni sem vantar.“ Hún segir fjármagnið til málaflokksins ekki hafa aukist. Krónutalan hafi staðið í stað þannig að fjárveitingin hafi rýrnað verulega að raunvirði. Í sumar, þegar umræða skapaðist um stöðu námsgagna, lýsti ráðherra því yfir að 600 milljónir króna yrðu settar aukalega í málaflokkinn. „Þær milljónir finnast hvergi,“ segir Íris. Frétt af mbl.is Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Búast við 600 milljónum Katrín Friðriksdóttir, sviðsstjóri námsgagnasviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, segist telja að 600 milljóna króna innspýtingin sé enn fyrirhuguð. „Ég ímynda mér að ráðherra muni tilkynna um hana vonandi fljótlega.“ Segir Katrín fjárveitinguna sem Miðstöðin fékk vegna prentunar hafa verið mun lægri. „Þessar prentmilljónir sem okkur vantaði eru einhvers staðar í nágrenni við 50 og þær komu allar í vor, það var ekki vandamál.“ Frétt af mbl.is Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi Gjaldþrot tafði prentun Segir Katrín að skortur á prentuðum námsgögnum við upphaf skólaársins megi skýra með gjaldþroti Ísafoldarprentsmiðju í vor. Þegar fyrirtækið fór í gjaldþrotaskipti hafi fjöldi titla verið í prentun. Lengi hafi ekki fengist upplýsingar úr þrotabúinu um stöðu þeirra, meðal annars hvort einhverjir titlar væru þegar tilbúnir erlendis og biðu flutnings til landsins. Á meðan hafi Miðstöðin ekki getað sett prentun aftur af stað. „Þetta fór ekki af stað fyrr en seint í sumar og er að detta inn núna. Síðustu titlarnir eru að detta inn og þetta verður allt komið fyrir septemberlok. Þetta eru vinnubækur sem krakkarnir eru að vinna í sem þeir sakna mest. Ég á von á að þetta verði allt komið eftir í mesta lagi tíu daga, öðru hvoru megin við næstu helgi.“ Frétt af mbl.is Úgefendur vilja ólmir komast inn á markaðinn Fengið staðfestingu með SMS-skilaboðum Íris segir óvissu um fjármögnun ekki eingöngu snúa að útgáfu miðstöðvarinnar. Hún birtist einnig í starfsemi Þróunarsjóðs námsgagna, sem styrkir gerð námsefnis. Hún segir sjóðinn fá fjármagn beint frá ráðuneytinu og sé eini sjóðurinn undir Rannís sem ekki sé á fjárlögum. Fyrir vikið geti verið óljóst hversu miklu megi úthluta hverju sinni. „Það er hentisemi ráðherra hvaða fjármagn finnst og ég er stundum í miðju úthlutunarferli enn að reyna að fá staðfest hvað megi úthluta. Stundum hef ég lent í því að fá svarið í sms-skilaboðum sem ég þarf að skjáskjóta úr símanum mínum til staðfestingar um að við megum úthluta þessum peningum. Þetta er svo galið.“ Frétt af mbl.is Vill taka upp „skandinavíska módelið“ Segir fyrirkomulagið sérstakt Íris gagnrýnir jafnframt hvernig útgáfu námsgagna er háttað hér á landi og segir miðstýringu hennar óvenjulega í alþjóðlegum samanburði. Hún segir aðeins fimm lönd vera með sambærilega miðlæga námsgagnaútgáfu og nefnir Ísland, Svartfjallaland, Norður-Kóreu, gelískumælandi Íra og Færeyjar. Færeyingar sæki þó jafnframt stóran hluta námsefnis síns til Danmerkur. „Ég held að þetta sé ekki hópur landa sem við viljum endilega vera stolt af því að tilheyra.“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Inga tekur af skarið og setur símabann Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Beint: Íslensk námsgögn – hvað er til? Inga: Börnin hafa beðið of lengi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Möguleg bylting í leitinni að hulduefni Skellur fyrir Guðjón Val Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Getur hann gengið laus á Indlandi? Harry Kane fór mikinn Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heiðar: Rógsherferð gegn mér „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Möguleg bylting í leitinni að hulduefni Skellur fyrir Guðjón Val Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Getur hann gengið laus á Indlandi? Harry Kane fór mikinn Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland dregist aftur úr í netöryggi „Það var kominn minkur inn“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article