Innlent | Morgunblaðið | 3.9.2026 | 6:00 Bankaskattar hér fimmfalt hærri Viðskiptabankarnir þrír Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn. Samsett mynd/Haraldur Guðjónsson/Kristinn Magnússon/Eggert Matthías Johannessen [email protected] Setja bókamerki Sértækir skattar á íslenska viðskiptabanka eru rúmlega fimmfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu, samkvæmt nýrri greiningu KPMG sem unnin var fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Fyrirhuguð hækkun skatta á fjármálafyrirtæki myndi auka muninn enn frekar. Í greiningunni eru sértækir skattar á banka bornir saman sem hlutfall af meðaleignum þeirra árið 2025. Þar mælist hlutfallið 0,307% á Íslandi en meðaltal samanburðarlandanna er 0,059%. Á Spáni, þar sem hlutfallið er næsthæst, er það 0,113%. Samkvæmt greiningunni er skattbyrði íslensku bankanna því rúmlega fimmfalt meiri en meðaltalið í Vestur-Evrópu. Verði skattar hækkaðir um sex milljarða króna yrði hún rúmlega sjöfalt meiri en meðaltalið. Þrír sértækir skattar Þrír sértækir skattar eru nú lagðir á bankastarfsemi hér á landi. Sérstakur bankaskattur nemur 0,15% af skuldum umfram 50 milljarða króna, sérstakur fjársýsluskattur er 6% viðbót við almennan tekjuskatt og fjársýsluskattur á laun nemur 5,5% ofan á tryggingagjald. Að auki greiða bankarnir gjöld vegna fjármálaeftirlits Seðlabankans og Umboðsmanns skuldara. Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri SFF bendir sömuleiðis á nýlega könnun Gallup fyrir SFF um afstöðu almennings til skattahækkunarinnar. Þar kom fram að meirihluti almennings teldi boðaða skattahækkun hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki og bæði viðskiptavini og hluthafa bankanna en jákvæð áhrif á ríkissjóð. „Þessi afstaða almennings og augljós sérstaða Íslands í sértækri skattlagningu ætti að vera fullt tilefni fyrir stjórnvöld til að staldra við og endurhugsa þessi áform,“ segir Heiðrún í samtali við Morgunblaðið. Heiðrún vísar jafnframt til þess að í hvítbók stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið frá árinu 2018 hafi háir sértækir skattar verið taldir hluti af svonefndu Íslandsálagi. Þá hafi meðal annars Seðlabankinn, Fjármálaeftirlitið og Bankasýsla ríkisins bent á vankanta skattanna og hvatt til endurskoðunar þeirra. Heiðrún segir enga endanlega útfærslu fyrirhugaðrar skattahækkunar liggja fyrir en segist hafa skilning á markmiði stjórnvalda um hallalaus fjárlög. Mikilvægt sé þó að leiðin að því markmiði valdi sem minnstum þjóðhagslegum skaða. Hún bendir jafnframt á að ríkið eigi um 40% hlut í viðskiptabönkunum í gegnum Landsbankann og innheimti 6% viðbótartekjuskatt af fjármálafyrirtækjum ofan á almennan 20% tekjuskatt. Heiðrún vísar jafnframt til þess að tekjur ríkissjóðs aukist að jafnaði um 57 krónur fyrir hverjar 100 krónur sem viðskiptabankarnir hagnast um eftir skatta. Þar sé horft til tekjuskatts, viðbótartekjuskatts og arðgreiðslna Landsbankans. Ótekjutengdir skattar og gjöld sem bankarnir greiða til ríkisins komi síðan til viðbótar. Heiðrún telur aukna skattbyrði geta unnið gegn markmiðum stjórnvalda um bætt lífskjör, aukna fjárfestingu atvinnulífsins, umbætur á húsnæðismarkaði og að laða að erlenda fjárfesta. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bankaskattar hér fimmfalt hærri Eins og blaut tuska Voru sendir á sálfræðifund í bakherbergi Auðmaður keypti 270 milljóna íbúð í blokk Styttir upp á vestanverðu landinu Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Hámarksrefsing verði tvöfölduð Gagnrýni Loga kom á óvart Viðbrögð við árás æfð með Bandaríkjaher Mest lesið Í gær Í vikunni Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Einn vann 1,9 milljónir Gagnrýni Loga kom á óvart Flokkur fólksins gæti klofnað „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Hámarksrefsing verði tvöfölduð Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Bankaskattar hér fimmfalt hærri Eins og blaut tuska Voru sendir á sálfræðifund í bakherbergi Auðmaður keypti 270 milljóna íbúð í blokk Styttir upp á vestanverðu landinu Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Ríkið borgar brúsann Mest lesið Í gær Í vikunni Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Einn vann 1,9 milljónir Gagnrýni Loga kom á óvart Flokkur fólksins gæti klofnað „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Hámarksrefsing verði tvöfölduð Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar