- What: Malfunctioning traffic lights at two intersections
- Impact: Drivers should follow traffic signs and be cautious
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Óvirk umferðarljós á tvennum gatnamótum Brynjólfur Þór Guðmundsson Umferðarljósin á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar og Nýbýlavegs, Dalvegar og Skemmuvegar eru óvirk. Ljósin biluðu í morgun og er unnið að því að gera við þau. Óvíst er hversu langur tími líður áður en þau komast í lag, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir viðbúið að umferð tefjist af þessum sökum. Hún brýnir fyrir bílstjórum að fylgja umferðarmerkjum og hugsanlega að fara aðra leið seinnipartinn. Safnmynd. Moritz Kindler Fyrir 7 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Rauði hálfmáninn vill að árás Bandaríkjanna á brúðkaup verði rannsökuð Rauði hálfmáninn í Íran vill að alþjóðlegur dómstóll rannsaki hvort árás Bandaríkjahers á brúðkaupsveislu í vikunni hafi verið stríðsglæpur. Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Rýmka reglur um fjölda bílastæða við nýbyggingar Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti í gær að fella úr gildi hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og hækka viðmið um hversu mörg stæðin eigi að vera. Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Funda vegna banaslyss við Stuðlagil Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Ferðamálastofa hefur boðað viðbragðsaðila, landeigendur við Stuðlagil og fulltrúa frá ferðaþjónustu og heilbrigðisstofnuninni á Austurlandi á fund vegna banaslyss í Stuðlagili í síðustu viku. 39 ára pólskur ferðamaður lést þegar hann féll í gilið. Þetta er annað banaslysið á tveimur árum. Sérfræðingur öryggismála hjá Ferðamálastofu segir að farið verði yfir það sem gerðist og hvað megi læra af því. Fyrir 48 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Jörðin undir fótum okkar verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna Dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar hefur valið framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. Heimildarmyndin Jörðin undir fótum okkar varð fyrir valinu. Fyrir 53 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Skilaboðin frá Íslandi í kastljósi erlendra fjölmiðla Niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi hefur vakið mikla umræðu í erlendum fjölmiðlum. Tvær skýringar eru áberandi: Þetta er slæmt fyrir Evrópusambandið og einnig að Ísland sýni að mögulegt sé að vinna með ESB án þess að ganga í sambandið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjanesbær Ljósanótt sett í vætusömu veðri í morgun Leik- og grunnskólabörn í Reykjanesbæ settu Ljósanótt í Skrúðgarðinum í Keflavík í dag. Mikið fjör var á setningunni þrátt fyrir vætusamt veður. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Kölluðu fulltrúa rússneska sendiráðsins á fund í utanríkisráðuneytinu Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins gerði alvarlegar athugasemdir við framferði Rússa við fulltrúa rússneska sendiráðsins í morgun. Þýsk stjórnvöld hafa sakað Rússa um að fljúga dróna með sprengiefni inn á flugvöll í Leipzig í ágúst. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Skoða hvort bregðast þurfi við þreytukönnun flugmanna Samgöngustofa rýnir nú niðurstöður könnunar FÍA um þreytu flugmanna í starfi og metur hvort bregðast þurfi við. Rúmur helmingur þeirra segist óvart hafa sofnað við störf. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Hlédrægt tónskáld nýuppgötvað Ina Boyle var írskt tónskáld, fædd 1889 og dó 1967. Hún bjó mestalla sína ævi við talsvert mikla einangrun á Bushey Park í Wicklow á Írlandi. Þótt hún reyndi að koma verkum sínum á framfæri voru þau flest óþekkt þar til núna á síðustu árum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Skera upp herör gegn hraðtísku og leggja aukagjald á hverja flík Stjórnvöld í Frakklandi hafa hert reglur um hraðtísku og lagt gjald á flíkur frá Shein, Temu og AliExpress. Gjaldið er frá hálfri evru fyrir nærföt upp í tólf fyrir jakka. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Stærðarinnar borgarísjakar við Hraun á Skaga Stærðarinnar borgarísjakar lóna nú úti fyrir Hrauni á Skaga. Borgarísjakar hafa verið áberandi við strendur landsins í sumar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Heimsglugginn: Árásir Rússa, danskir bændur, bresk og sænsk stjórnmál Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Til umræðu voru árásir Rússa í Leipzig og möguleg viðbrögð Vesturlanda, mótmæli danskra bænda og bresk og sænsk stjórnmál. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Gera nýtt umhverfismat fyrir Hvalárvirkjun Unnir er að nýju umhverfismati fyrir Hvalárvirkjun. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Andlát Gloria Steinem látin Ein af þekktustu baráttukonum fyrir jafnrétti og femínisma í Bandaríkjunum er látin, 92 ára að aldri. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Slys Segir síðustu daga dótturinnar hafa verið þá hamingjusömustu í lífi hennar Móðir írsku stúlkunnar sem lést í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi segir dóttur sína hafa kolfallið fyrir Íslandi og Íslendingum. Síðustu dagarnir hafi verið þeir hamingjusömustu á ævi hennar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Tekjur landsmanna hækkuðu umfram verðbólgu Brynjólfur Þór Guðmundsson Landsmenn höfðu að meðaltali 10,5 milljónir króna í tekjur í fyrra eða 875 þúsund krónur á mánuði. Helmingur var með heildartekjur undir 730 þúsund krónum á mánuði. Þetta kemur fram í yfirliti Hagstofunnar um heildartekjur einstaklinga í fyrra. Inn í þá útreikninga falla atvinnutekjur, fjármagnstekjur og aðrar tekjur. Launin hækkuðu um 5,7 prósent milli ára, það þýðir að laun hækkuðu um 1,6 prósent þegar búið er að gera ráð fyrir verðbólgu. Miðgildi launa var 730 þúsund og hækkaði um 1,5 prósent umfram verðbólgu. Frá undirritun kjarasamnings 2024. RÚV / Benedikt Sigurðsson Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hafnar því að stjórn SÁÁ skipti sér af faglegu heilbrigðisstarfi Formaður SÁÁ segir stjórnina ekki hafa afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi en að henni beri að hafa með því eftirlit. Hún segir það keppikefli að tryggja gæði starfseminnar nú þegar forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga hafa látið af störfum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Veður Útlit fyrir sterkasta El Niño í áratugi með miklum öfgum í veðri Útlit er fyrir að El Niño-veðurfyrirbærið verði öflugra í ár en nokkru sinni síðan Alþjóðaveðurfræðistofnunin byrjaði að mæla umfang þess fyrir 40 árum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Keyptu „pulsuna góðu“ – öll vandamál vetrarins úr sögunni? Knattspyrnusamband Íslands hefur keypt hitapulsuna sem hefur haldið grasinu á Laugardalsvelli leikfæru síðustu ár. Pulsan hafði áður verið leigð dýrum dómi til að hægt væri að leika að vetri til. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Eins og ungfrú Ísland fyrir stóra homma“ Reykjavik Bear-hátíðin er haldin í fimmta sinn um helgina. Þetta er í annað sinn sem einn bangsi er útvalinn og krýndur Reykjavik bear. Því hlutverki sinnti Jóhann Örn Benediktsson síðasta árið en hann er tilbúinn að krýna næsta bangsa. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína Tveir táningar drepnir á Vesturbakkanum Ísraelskir hermenn drápu sextán og nítján ára palestínska drengi á Vesturbakkanum í nótt. Yfirmaður þorpsráðs segir að ísraelskir hermenn hafi látið til skarar skríða eftir að heimamenn reyndu að koma í veg fyrir sauðaþjófnað landtökumanna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður All hvasst syðst á landinu Fjölbreytt veður verður í dag og á morgun þegar lægðir skiptast á að stjórna vindi og úrkomu. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Alexander Skarsgård hlýtur heiðursverðlaun RIFF Skarsgård, sem er einn þekktasti leikari Svía á alþjóðavettvangi, tekur við heiðursverðlaunum RIFF í ár fyrir framúrskarandi listfengi. Hátíðin verður sett í Háskólabíói 24. september. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Hvíta húsið sagt hafa þrýst á geimferðafyrirtæki að hunsa ráðstefnu í París Hvíta húsið hefur að sögn þrýst á bandarísk geimferðafyrirtæki að hunsa boð um þátttöku í viðamikilli ráðstefnu um málefni geimsins í París í næstu viku. Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar hefur sagt brýnt að Bandaríkjamenn verði með. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Áttaði sig ekki á afrekunum fyrr en sonurinn tók þau saman Alfreð Gíslason handboltaþjálfari segist aldrei hafa talið titlana og að það hafi komið honum á óvart hversu vel hefur í raun gengið eftir að sonur hans tók þá saman. Hann er stoltur af ferlinum hingað til en þó hvergi nærri hættur. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eistland Varnarmálaráðherra segir af sér vegna mikils klúðurs við skotfærapöntun Markús Þ. Þórhallsson Varnarmálaráðherra Eistlands, Hanno Pevkur, sagði af sér í gær vegna rannsóknar á ástæðum þess að skotfærapöntun gerð árið 2024 ætluð Úkraínu barst aldrei þangað. Hanno Pevkur hefur verið varnarmálaráðherra Eistlands síðan 2022. EPA / Anders Wiklund Eistar höfðu pantað og greitt fyrir skotfæri að verðmæti sjötíu milljónir evra gegnum indverskt fyrirtæki sem hafði engan bakgrunn í slíkum viðskiptum. Ríkisendurskoðandi komst að þessu misræmi og ríkissaksóknari hóf í kjölfarið sakamálarannsókn gegn yfirmönnum ráðuneytisins. Pevkur segist í færslu á Facebook engan beinan þátt hafa átt í viðskiptunum en sem ráðherra axli hann sína ábyrgð með afsögn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Mikið reykjarkóf á tveimur stöðum með stuttu millibili Markús Þ. Þórhallsson Fjórar stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar til um klukkan hálf eitt í nótt vegna mikils reyks sem barst frá þaki Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Slökkviliðsmenn frá fjórum stöðvum glímdu við eld og reyk í þakskeggi Rimaskóla. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage Tæpar tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn, sem logaði í millilofti að sögn Sigurjóns Hendrikssonar varðstjóra. Eldinum fylgdi mikið reykjarkóf. Upphaflega var talið að ein stöð dygði til en svo reyndist ekki vera. Áður en slökkvistarfi lauk við Rimaskóla barst tilkynning um að bökunarofn hefði ofhitnað í