Móðir írsku stúlkunnar sem lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi segir að síðustu dagar dóttur hennar, Hönnuh Jane Large, hafi verið mestu hamingjudagarnir í lífi hennar. Hún segist, í athugasemd við færslu Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, hafa talað við dóttur sína kvöldið sem hún lést og lífsgleðin hafi skinið af henni. Stúlkan var ein þriggja ungmenna sem létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Auk hennar létust 16 ára íslensk stúlka og tvítugur íslenskur maður. Halla Tómasdóttir minntist ungmennanna í færslu á samfélagsmiðlum og sagði að hugur hennar væri hjá fjölskyldum þeirra og vinum. Engin orð næðu utan um slíkan missi. Móðir Hönnuh Jane, Sam Large, þakkar Höllu fyrir yfirlýsinguna. Hún segir dóttur sína hafa kolfallið fyrir Íslandi og fólkinu þar og að síðustu dagar hennar hafi verið þeir hamingjuríkustu á ævi hennar. „Það er okkar eina huggun. Við töluðum við hana þetta kvöld og hún var full af lífsgleði. Hörmulegt, hún skilur eftir bróður sinn og okkur.“