Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq hækkar um 4%

Read Full Article →

Málmleitarfélagið Amaroq hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar í viðskiptum dagsins, eða um 4,1% í yfir 220 milljóna króna veltu. Gengi Amaroq stóð í 177 krónum við lokun Kauphallarinnar og er um 29% hærra en í byrjun júlí. Hækkunin á gengi Amaroq í dag er rakin til tilkynningar um að félagið verður tekið inn í tvær vísitölur hjá FTSE Russell, en það mun hafa í för með sér að alþjóðlegir vísitölusjóðir munu í framhaldinu kaupa í félaginu, eins og Innherji fjallaði um í dag. Alvotech hækkaði næst mest eða um 1,2 í tæplega hundraðmilljóna króna veltu og stendur gengi líftæknifyrirtækisins nú í 650 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Alvotech var síðast hærra í byrjun febrúar. Fimm félög lækkuðu um eitt prósent eða meira í viðskiptum dagsins. Iceland Seafood og Kaldalón lækkuðu mest eða um meira en 2%. Gengi Iceland Seafood stendur í 3,92 krónum á hlut og hefur aldrei verið lægra, eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst.

Share this article