Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Slaka á kröfum um verslunarrými á jarðhæð og íbúðastærðir

Read Full Article →

Á fundi umhverfis- skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í gær voru samþykktar tillaga meirihlutans um að auka svigrúm byggingaraðila við hönnun bygginga til að ákvarða íbúðasamsetningu með hliðsjón af eftirspurn og þörfum markaðarins. Eins var samþykkt tillaga um að krafa um tiltekna atvinnu-, verslunar- eða þjónustustarfsemi á jarðhæðum verði aðeins sett þar sem staðsetning, raunhæf eftirspurn og skipulagsmarkmið gefa tilefni til. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar segir að með samþykkt tillagnanna tveggja sé aukinn sveigjanleiki tryggður við gerð deiliskipulags. Að jafnaði verði ekki sett stíf bindandi hlutfallsviðmið um stærðir eða herbergjafjölda íbúða á einstökum byggingarreitum nema sérstakar skipulagslegar, félagslegar eða lýðfræðilegar forsendur réttlæti það. „Aukið svigrúm uppbyggingaraðila þarf þó að haldast í hendur við markmið um fjölbreytt húsnæði og mat á áhrifum íbúðasamsetningar á skóla, samgöngur, þjónustu og félagslega samsetningu hverfa.“ Þá verði krafa um tiltekna atvinnu-, verslunar- eða þjónustustarfsemi á jarðhæðum aðeins sett þar sem staðsetning, raunhæf eftirspurn og skipulagsmarkmið gefa tilefni til. „Á stærri uppbyggingarsvæðum þarf áfram að tryggja nægilegt rými fyrir nærþjónustu og virkar jarðhæðir á réttum stöðum. Sviðið skýri jafnframt hvað felist í virkum eða lifandi jarðhæðum, meðal annars með hliðsjón af nærþjónustu, aðlaðandi götumynd og því að íbúðir séu ekki staðsettar í rýmum sem henta illa til búsetu.“ Tillögurnar voru samþykktar með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar.

Share this article