Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gallup: Fylgi Viðreisnar ekki minna í tvö ár

Read Full Article →

Fylgi Viðreisnar mælist 9,7% í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup fyrir ágúst og hefur ekki mælst lægra síðan í júlí 2024, þegar það var 8,8%. Flokkurinn tapar 1,7 prósentustigum frá júlímælingunni, þegar fylgið var 11,4%. Þetta er í annað sinn á árinu sem fylgið mælist undir tíu prósentum, en í mars var það 9,9%. Sjá einnig Gallup: Ríkisstjórnin fallin Fylgi Viðreisnar tók kipp haustið 2024 í aðdraganda alþingiskosninganna, fór úr 10,3% í september í 14,9% í október og náði hámarki í 17,6% í nóvember. Í kosningunum 30. nóvember hlaut flokkurinn 15,8% atkvæða og myndaði í kjölfarið ríkisstjórn með Samfylkingunni og Flokki fólksins. Framan af stjórnarsamstarfinu hélst fylgið nokkuð stöðugt. Frá desember 2024 og fram á sumar 2025 sveiflaðist það á bilinu 13,7% til 16,2% og mældist enn 14,6% í júlí í fyrra. Síðan þá hefur leiðin legið niður á við, með einstaka undantekningum. Í ágúst 2025 var fylgið 12,9%, í desember 10,8% og í mars á þessu ári fór það í fyrsta sinn undir tíu prósent á kjörtímabilinu. Nokkur viðspyrna kom í sumar, þegar fylgið mældist 11,4% tvo mánuði í röð, en ágústmælingin þurrkar þá uppsveiflu út. Samanborið við kosningaúrslitin hefur Viðreisn tapað 6,1 prósentustigi, eða ríflega þriðjungi þess fylgis sem flokkurinn fékk í kosningunum. Á einu ári, frá ágúst 2025 til ágúst 2026, nemur lækkunin 3,2 prósentustigum. Sjá einnig Gallup: Meiri­hlutinn van­treystir utan­ríkis­ráðherra Fylgi Viðreisnar er þar með komið aftur á svipaðar slóðir og það var sumarið 2024, áður en kosningabaráttan hófst, þegar flokkurinn mældist með 8,8% í júlí og 10,1% í ágúst. Mælingin bendir til þess að sá meðbyr sem flokkurinn fékk í kosningunum sé að mestu genginn til baka. Viðreisn fékk ellefu þingmenn kjörna í kosningunum 2024. Væri fylgið nú 9,7% á kjördag mætti gera ráð fyrir að þingmönnum flokksins fækkaði um fjóra, þótt skipting þingsæta ráðist einnig af fylgi annarra flokka og dreifingu þess milli kjördæma.

Share this article