Bandaríska myntsláttan byrjaði í gær að selja eins dala mynt sem prýdd er andlitsmynd Donalds Trumps í tilefni af 250 ára afmæli Bandaríkjanna. Trump er þar með fyrsti lifandi forseti landsins sem birtist á bandarískum gjaldmiðli í um heila öld. Á vef BBC segir að myntin hafi selst upp innan nokkurra klukkustunda frá því hún fór í sölu en rúlla með 25 myntum kostaði um 61 dal, eða um 7.500 krónur. Þar að auki var hægt að kaupa hundrað mynta pakka á um 19 þúsund krónur. Myntin var einnig til sölu í sjálfsölum í verslun myntsláttunnar í Washington. Myntsláttan segir að myntin fari ekki í almenna umferð en að hún sé þó gildur gjaldmiðill. Sjá einnig Trump-fjölskyldan í bankarekstur Þótt myntin sjálf sé gyllt að lit inniheldur hún ekkert gull. Samkvæmt myntsláttunni er hún 88,5% kopar og restin er samansett af sinki, mangani og nikkel. Bandarísk alríkislög banna lifandi forsetum að birtast á gjaldmiðlum landsins, en stjórnvöld nýttu ákvæði um útlit minjagripa í lögum sem tengjast afmælishátíð landsins til að komast fram hjá banninu. Síðasti lifandi forseti sem birtist á bandarískum gjaldmiðli var Calvin Coolidge en hann prýddi hálfdalsmynt sem slegin var í tilefni af 150 ára afmæli Bandaríkjanna árið 1926. Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í maí á þessu ári að ráðuneytið hygðist gefa út nýjan 250 dala seðil með mynd af Trump og benti þá á Coolidge-myntina sem fyrirmynd.