Innlent | Morgunblaðið | 3.9.2026 | 23:09 Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Frá þessu húsi á Reykjavíkurflugvelli er flugumferð á Íslandi stjórnað. Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Borgarráð samþykkti á fundi sínum 27. ágúst síðastliðinn tillögu að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna skilgreiningar nýrra lóða við Nauthólsveg. Það telst ekki til tíðinda að skilgreindar séu nýjar lóðir í höfuðborginni. Hins vegar felast tíðindi í nýjum og breyttum tón sem fram kemur í bókun meirihlutaflokkanna í borginni frá því sem var í tíð fyrri meirihluta þegar fjallað var um málefni Reykjavíkurflugvallar. Samfylkingin sat í meirihluta í Reykjavík frá 2010 til 2026. Það var á stefnuskrá flokksins að flugvöllurinn myndi víkja úr Vatnsmýri og þar risi íbúðabyggð í staðinn. Margra áratuga leit að nýju flugvallarstæði hefur hins vegar ekki borið árangur eins og alþjóð veit. Borgarráðsfulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, lögðu fram svohljóðandi bókun á fundinum: „Meirihlutinn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Breytingin felur meðal annars í sér að skilgreindar eru lóðir fyrir starfsemi og búnað sem tengjast áframhaldandi rekstri flugvallarins. Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð, þar sem enn hefur ekki verið fundin viðeigandi staðsetning á nýjum flugvelli. Því er mikilvægt að skipulag svæðisins taki mið af þessari staðreynd og skapi nauðsynlegar forsendur fyrir öruggum og hagkvæmum rekstri flugvallarins á meðan svo er. Jafnframt er mikilvægt að nauðsynleg uppbygging og viðhald innviða geti átt sér stað með eðlilegum hætti.“ Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram svohljóðandi bókun, sem er meira í ætt við þann tón sem áður hefur komið fram hjá þeim flokki þegar hann var í meirihluta: „Fulltrúar Samfylkingarinnar árétta að deiliskipulagsbreytingar og afmörkun nýrra tæknilóða við Nauthólsveg eru bráðabirgðaráðstafanir sem lúta eingöngu að öryggi og rekstri flugvallarins á meðan hann starfar í Vatnsmýri. Lögð er áhersla á að afmörkun lóðanna skerði á engan hátt fyrirhugaða uppbyggingu Borgarlínu, göngu- og hjólastíga né þá samfélagsþjónustu og lífsgæðakjarna sem áformað er að rísi við Nauthólsveg 50-52. Minnt er á skýr ákvæði um að lóðarréttindi og heimildir undir búnaðinn falla niður þegar hann verður fjarlægður.“ Flugskýlið og gamli flugturninn. Sögulegar minjar frá seinni heimsstyrjöldinni. Lóðir við Nauthólsveg Í breytingunni, sem samþykkt var í borgarráði, felst að skilgreind er ný lóð, Nauthólsvegur 64-66, þar sem flugstjórnarmiðstöðin og spennistöð standa í dag. Auk þess er skilgreind lóð á reit Nauthólsvegar 56-60, Nauthólsvegur 58E. Áður skilgreindir byggingarreitir innan nýrrar lóðar 64-66 haldast óbreyttir og helst heildarbyggingarmagn á reitnum/nýrri lóð óbreytt, bæði ofan- og neðanjarðar. Á nýrri lóð að Nauthólsvegi nr. 58E verður heimilt að setja upp flugvallarbúnað, þ.m.t. mastur allt að 30 metra hátt. Þetta verður myndavélamastur fyrir fjarstýrðan flugturn á Reykjavíkurflugvelli. Notkun fjarturna til að stjórna flugumferð hefur rutt sér til rúms víða um Evrópu á undanförnum árum. Nýttar eru myndavélar og upplýsingabúnaður sem nær 360 gráðu hring svo fjarstýra megi flugvöllum með fullkomnu öryggi. Gert er ráð fyrir að framtíðaraðstaða flugumferðarstjóra og stýring flugumferðar verði í Flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg (Isavia ANS). Upphaflega stofnfjárfestingin með öllum búnaði var áætluð um 600 milljónir króna. Isavia mun standa að framkvæmdinni. Samkvæmt deiliskipulagstillögunni verður jafnframt heimilt að rífa gamlar og úreltar byggingar/skúra á lóðinni. Í kjölfar niðurrifs verður heimilt að reisa bráðabirgðahúsnæði fyrir skrifstofur flugrekenda og flugskóla og sömuleiðis vélageymslu. Þegar tillagan var auglýst barst umsögn frá Minjastofnun. Bendir stofnunin á að samkvæmt fyrirliggjandi skýrslu Minjasafns Reykjavíkur frá 2013 séu engar fornleifar skráðar innan þess svæðis sem breytingin tekur til. Hins vegar séu skráðar nokkrar herminjar á svæðinu. Slíkar minjar hafi mikið menningarsögulegt gildi þótt þær hafi ekki náð þeim aldri að teljast til friðaðra fornleifa, húsa eða mannvirkja og séu því utan lögformlegs umboðs Minjastofnunar. Tvö friðlýst mannvirki Stofnunin bendir á að á svæðinu séu tvö friðlýst hús. Um sé að ræða gamla flugturninn og flugskýli sem reist voru af hernámsliðinu á árunum 1941-1942. Þetta er fyrsta flugskýlið á Reykjavíkurflugvelli. Á stríðsárunum var umferð herflugvéla á Norður-Atlantshafi stjórnað frá gamla flugturninum. Eftir að Íslendingar tóku við flugvellinum var hann miðstöð flugumferðarstjórnar á Íslandi og gegndi því hlutverki fram á 7. áratug 20. aldar. Bæði þessi mannvirki teljast menningarminjar enda eru þau vitnisburður um sérstakan tíma í sögu þjóðarinnar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Framkvæmir það sem henni dettur í hug Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Ákærð fyrir mannskæða skotárás Áfall fyrir tvo leikmenn Liverpool Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru „Ég held auðvitað í vonina“ „Stærri bilun en við áttum von á“ Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Framkvæmir það sem henni dettur í hug Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Ákærð fyrir mannskæða skotárás Áfall fyrir tvo leikmenn Liverpool Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brot sem verða að hafa afleiðingar Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT „Hópur“ af vitnum kallaður til lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar