Innlent | Morgunblaðið | 4.9.2026 | 6:00 „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Könnun segir flugmenn sofna um borð. mbl.is/Árni Sæberg Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Að mínu mati er þetta vegferð stéttarfélagsins til að ná tilslökuninni frá árinu 2020 til baka,“ segir heimildarmaður Morgunblaðsins úr flugheiminum við blaðið, þegar leitað er álits hans á niðurstöðum könnunar sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, gerði meðal flugmanna Icelandair í sumar. Málið snúist fyrst og fremst um kjaramál og sé vegferð félagsins til að breyta vinnufyrirkomulagi til fyrra horfs. „Þetta er leikrit og ekkert annað,“ segir hann. Könnunin leiddi í ljós að ríflega helmingur flugmanna félagsins sagðist hafa sofnað óviljandi við störf um borð á þriggja mánaða tímabili í sumar. Alls tóku 508 flugmenn þátt í könnuninni, eða um 80% félagsmanna. Af þeim kváðust 286 hafa sofnað óviljandi við störf um borð og þriðjungur oftar en einu sinni. Þetta kemur m.a. fram í frétt Ríkisútvarpsins. Samkvæmt heimildum blaðsins hverfist málið um kjör flugmanna og rekja má upphaf þess til kjarasamninga 2020, þegar heimsfaraldur kórónuveiru geisaði, þegar samið var um verulegar breytingar samninga til þess að liðka fyrir nýtingu flugmanna. Í kjaraviðræðum flugmanna og félagsins hafa flugmenn viljað fá því breytt. Frétt af mbl.is Meira en helmingur flugmanna sofnað við störf Samhliða samningunum 2020 var farið í það hjá Icelandair að taka upp kerfi sem heldur utan um mögulega þreytu flugmanna við uppsetningu vinnuskráa þeirra. Innan félagsins er nefnd sem fer reglulega yfir skýrslur stéttarfélaganna varðandi framangreint. Í henni eru fulltrúar flugmanna, flugfreyja og Icelandair. Flækjustigið í flugi Icelandair er að flogið er bæði til austurs og vesturs og yfir mörg tímabelti og því er möguleiki á þreytu flugmanna vegna tímamismunar meiri en ella. Áðurnefnt kerfi er til þess ætlað að starfskraftar flugmanna séu nýttir sem best ásamt því að sýna hvernig æskilegt sé að setja upp vinnuskrár þeirra m.t.t. mögulegrar þreytu o.fl. og er farið eftir því. Niðurstöður könnunarinnar séu á skjön við kerfið og eftirlit Icelandair. Hins vegar skorti á að flugmenn sýni ábyrgð og nýti frítíma sinn til hvíldar og skv. heimildum blaðsins er ekki óalgengt að flugmenn sinni öðru starfi jafnframt. Þá sýni greiningar sérfræðinga að nýting flugmanna ætti ekki að leiða til þeirrar niðurstöðu sem könnunin sýndi. Málið er til skoðunar hjá Samgöngustofu skv. upplýsingum Þórhildar Elínar Elínardóttur samskiptastjóra. Ekki náðist í Jón Þór Þorvaldsson formann FÍA við vinnslu fréttarinnar. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ekki á vísan að róa við spágerðina Hiti allt að 15 stigum „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Hörður húðskammaði íslensk stjórnvöld Eftirsóttir og einhleypir akkúrat núna Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Kemur vel til greina að fjarlægja klett Brot sem verða að hafa afleiðingar „Var þetta vopnahlé?" Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Framkvæmir það sem henni dettur í hug Írskir miðlar fjalla um banaslysið Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Kemur vel til greina að fjarlægja klett Kom óboðinn og reyndi að fara inn á baðherbergið „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Ekki á vísan að róa við spágerðina Hiti allt að 15 stigum „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Hörður húðskammaði íslensk stjórnvöld Eftirsóttir og einhleypir akkúrat núna Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Þetta má ekki endurtaka sig“ Kölluðu Rússa á teppið vegna drónaárásar Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Framkvæmir það sem henni dettur í hug Írskir miðlar fjalla um banaslysið Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Kemur vel til greina að fjarlægja klett Kom óboðinn og reyndi að fara inn á baðherbergið „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar