Innlent | Morgunblaðið | 4.9.2026 | 7:14 Andlát: Sigríður Þorvaldsdóttir Sigríður Þorvaldsdóttir. Setja bókamerki Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona og leikstjóri, er látin. Hún lést á Landspítalanum 31. ágúst, 85 ára að aldri. Sigríður fæddist í Reykjavík 12. apríl 1941. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Steingrímsson tónlistarmaður og Ingibjörg Halldórsdóttir hárgreiðslumeistari. Sigríður hóf ung að árum nám í leiklist og útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1958. Hún lék sitt fyrsta hlutverk á sviði Þjóðleikhússins það ár, sem Bianca, í söngleiknum Kysstu mig Kata. Sama ár var hún kjörin Ungfrú Ísland, sem gaf henni færi á að ferðast til vesturstrandar Bandaríkjanna, þar sem hún stundaði framhaldsnám í leiklist í Hollywood og starfaði þar um skeið. Sigríður hélt því næst til Texas, þar sem hún starfaði hjá Dallas Theater Center, einu þekktasta atvinnuleikhúsi Bandaríkjanna á þeim tíma. Að lokinni dvöl sinni í Bandaríkjunum sneri Sigríður heim til Íslands og hóf störf við Þjóðleikhúsið sem fastráðin leikkona. Lék hún m.a. Snæfríði Íslandssól í Íslandsklukku Halldórs Laxness, Adelaide í Gæjum og píum og Velmu Kelly í Chicago. Var hún einnig leikstjóri bæði í leikhúsi og sjónvarpi, auk þess sem hún leikstýrði við Íslensku óperuna. Leiklistarstarf Sigríðar einskorðaðist þó ekki við atvinnuleikhúsin, en hún var einn helsti hvatamaður að stofnun Leikfélags Mosfellssveitar árið 1976. Sigríður var áberandi í Áramótaskaupi sjónvarpsins og kom sjö sinnum fram á árunum 1967 til 1982 og leikstýrði því árið 1979. Hún var kjörin varaþingmaður Kvennalistans árið 1985 og tók sæti á Alþingi um skeið. Hún flutti frumvarp að lögum um að sett yrði upp lyfta fyrir fatlaða í Þjóðleikhúsinu og var frumvarpið samþykkt. Sigríður var virk í félags- og hagsmunamálum leikara og árið 1988 varð hún formaður Félags íslenskra leikara. Ævisaga Sigríðar, Í gylltum ramma , kom út árið 2005 og árið 2006 var hún útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness fyrir framlag sitt til lista og menningarlífs. Sigríður Þorvaldsdóttir setti mark sitt á íslenskt leiklistarlíf áratugum saman. Meðal kvikmynda sem hún lék í eru Veiðiferðin og Stella í orlofi. Sigríður giftist árið 1967 Lárusi Sveinssyni, trompetleikara og söngstjóra. Saman eignuðust þau þrjár dætur, Ingibjörgu, f. 26. janúar 1970, Þórunni, f. 6. janúar 1973, og Dísellu, f. 12. mars 1977. Barnabörnin eru níu talsins og barnabarnabörnin tvö. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Andlát: Sigríður Þorvaldsdóttir 61 árs og sjóðheit í Króatíu Húsnæðisbyrði ungs fólks aukist mest Stöðvaður á 190 km hraða Þrjú verk komu í leitirnar eftir umfjöllun Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kölluðu Rússa á teppið vegna drónaárásar „Þetta má ekki endurtaka sig“ Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Framkvæmir það sem henni dettur í hug Írskir miðlar fjalla um banaslysið Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Andlát: Sigríður Þorvaldsdóttir 61 árs og sjóðheit í Króatíu Húsnæðisbyrði ungs fólks aukist mest Stöðvaður á 190 km hraða Þrjú verk komu í leitirnar eftir umfjöllun Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þeir stóru moka út miðum á jólasýningar 20 milljarðar á 20 árum „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Framkvæmir það sem henni dettur í hug Írskir miðlar fjalla um banaslysið Jákvæðari tónn í garð flugvallarins Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar