200 mílur | mbl | 4.9.2026 | 8:48 Boðar frumvarp um stórþörunga Fyrirtæki sem vinna afurðir úr þörungum og þara sýndu afurðir sínar á ráðstefnu um tækifæri stórþörunga á Íslandi sem haldin var á Akranesi síðdegis í gær. mbl.is/Óli Kristján Ármannsson Óli Kristján Ármannsson [email protected] Setja bókamerki Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra mælir í haust fyrir nýju frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó. Þetta kom fram í opnunarræðu hennar á ráðstefnunni „Gull á grunnsævi“ sem fram fór hjá Breið nýsköpunarsetri á Akranesi síðdegis í gær. Á ráðstefnunni héldu erindi forsvarsmenn fjölda fyrirtækja og félagasamtaka og beindu sjónum að tækifærum sem sögð eru felast í nýtingu og ræktun stórþörunga, svo sem til framleiðslu á matvælum, fæðubótaefnum, fóðri, lyfjum og fleiru. Vill tryggja ábyrga ræktun Ráðherra benti á að stórþörungarækt í sjó væri hér ung atvinnugrein og að þótt áhugi væri til staðar og tilraunir stæðu yfir þá væri núgildandi regluverk ekki sérstaklega sniðið að þessari starfsemi. „Markmið frumvarpsins er að koma á skýrum, fyrirsjáanlegum og skilvirkum lagaramma sem styður við rannsóknir, þróun og atvinnuuppbyggingu, á sama tíma og tryggt er að ræktun fari fram með ábyrgum hætti,“ sagði Hanna Katrín. Þá kom fram í máli hennar að í frumvarpinu verði gert ráð fyrir bæði rannsóknar- og rekstrarleyfum. Hanna Katrín Friðriksson Máli skipti að hægt væri að prófa nýjar aðferðir, afla gagna og byggja upp þekkingu áður en ráðist væri í stærri rekstur. Þá þyrftu rekstrarleyfi jafnframt að byggja á skýrum skilyrðum um staðsetningu, búnað, ræktunarefni, vöktun, upplýsingaskil og frágang. Ólíkir hagsmunir mætast Eins þurfi að horfa á haf- og strandsvæði sem sameiginlegt rými þar sem mætast ólíkir hagsmunir á borð við siglingar, fiskveiðar, fiskeldi, náttúruvernd, ferðaþjónusta og útivist. „Allt þetta þarf að hafa í huga og sníða umgjörð utan um greinina sem styður við framþróun hennar.“ Hanna Katrín sagðist leggja áherslu á að stjórnvöld ættu gott samtal við greinina. „Þið sem hér eruð þekkið tækifærin, hindranirnar og tæknilegu úrlausnarefnin,“ sagði hún. „Þess vegna skiptir samráð miklu máli við endanlega mótun frumvarpsins og reglna sem kunna að fylgja í kjölfarið.“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki á vísan að róa við spágerðina Sér möguleika í vetrarsiglingum Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Beint heim að skrifa þá næstu Segir veiðina hafa verið blettótta Ræða möguleika þörungaræktar Andlát: Óli Hjálmar Ólason Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Dómsdagsspárnar stóðust ekki Þorskstofn í Barentshafi veikist Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Sér möguleika í vetrarsiglingum Beint heim að skrifa þá næstu Dómsdagsspárnar stóðust ekki Ræða möguleika þörungaræktar Segir veiðina hafa verið blettótta Vilja hluta kvótans út fyrir sviga Andlát: Óli Hjálmar Ólason Þorskstofn í Barentshafi veikist Andlát: Óli Hjálmar Ólason Brynjar nýr formaður stjórnar Írar hefðu líka viljað fá undanþágur frá ESB Vindorkugámar og sólarsellur um borð í Helgafelli Dómsdagsspárnar stóðust ekki Andanefju rak á land Strandveiðisjómenn brosa hringinn Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Sjávarútvegsfyrirtæki lækka á markaði Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu Fleira áhugavert „Þetta má ekki endurtaka sig“ Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT „Stærri bilun en við áttum von á“ Þeir stóru moka út miðum á jólasýningar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 3.9.26 741,11 kr/kg Þorskur, slægður 3.9.26 641,91 kr/kg Ýsa, óslægð 3.9.26 545,88 kr/kg Ýsa, slægð 3.9.26 563,57 kr/kg Ufsi, óslægður 3.9.26 367,91 kr/kg Ufsi, slægður 3.9.26 309,53 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 3.9.26 325,07 kr/kg Litli karfi 1.9.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 2.9.26 303,01 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 3.9.26 Hildur SH 777 Dragnót Þorskur 681 kg Skarkoli 388 kg Skrápflúra 217 kg Sandkoli 82 kg Steinbítur 45 kg Langlúra 41 kg Þykkvalúra 15 kg Samtals 1.469 kg 3.9.26 Kristján HF 100 Lína Hlýri 764 kg Þorskur 419 kg Karfi 137 kg Keila 94 kg Ufsi 27 kg Ýsa 4 kg Samtals 1.445 kg 3.9.26 Magnús SH 205 Dragnót Skrápflúra 634 kg Skarkoli 629 kg Ýsa 565 kg Þorskur 179 kg Sandkoli 100 kg Samtals 2.107 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki á vísan að róa við spágerðina Sér möguleika í vetrarsiglingum Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Beint heim að skrifa þá næstu Segir veiðina hafa verið blettótta Ræða möguleika þörungaræktar Andlát: Óli Hjálmar Ólason Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Dómsdagsspárnar stóðust ekki Þorskstofn í Barentshafi veikist Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Sér möguleika í vetrarsiglingum Beint heim að skrifa þá næstu Dómsdagsspárnar stóðust ekki Ræða möguleika þörungaræktar Segir veiðina hafa verið blettótta Vilja hluta kvótans út fyrir sviga Andlát: Óli Hjálmar Ólason Þorskstofn í Barentshafi veikist Andlát: Óli Hjálmar Ólason Brynjar nýr formaður stjórnar Írar hefðu líka viljað fá undanþágur frá ESB Vindorkugámar og sólarsellur um borð í Helgafelli Dómsdagsspárnar stóðust ekki Andanefju rak á land Strandveiðisjómenn brosa hringinn Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Sjávarútvegsfyrirtæki lækka á markaði Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu Fleira áhugavert 20 milljarðar á 20 árum Írskir miðlar fjalla um banaslysið „Þetta má ekki endurtaka sig“ „Stærri bilun en við áttum von á“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 3.9.26 741,11 kr/kg Þorskur, slægður 3.9.26 641,91 kr/kg Ýsa, óslægð 3.9.26 545,88 kr/kg Ýsa, slægð 3.9.26 563,57 kr/kg Ufsi, óslægður 3.9.26 367,91 kr/kg Ufsi, slægður 3.9.26 309,53 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 3.9.26 325,07 kr/kg Litli karfi 1.9.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 2.9.26 303,01 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 3.9.26 Hildur SH 777 Dragnót Þorskur 681 kg Skarkoli 388 kg Skrápflúra 217 kg Sandkoli 82 kg Steinbítur 45 kg Langlúra 41 kg Þykkvalúra 15 kg Samtals 1.469 kg 3.9.26 Kristján HF 100 Lína Hlýri 764 kg Þorskur 419 kg Karfi 137 kg Keila 94 kg Ufsi 27 kg Ýsa 4 kg Samtals 1.445 kg 3.9.26 Magnús SH 205 Dragnót Skrápflúra 634 kg Skarkoli 629 kg Ýsa 565 kg Þorskur 179 kg Sandkoli 100 kg Samtals 2.107 kg Skoða allar landanir »