Innlent | Morgunblaðið | 4.9.2026 | 10:30 Draga úr gjaldtöku bílastæða Nýr gjaldskyldutími á gjaldsvæðunum P1 og P2 sem eru í miðborg Reykjavíkur verður styttur um eina klukkustund. mbl.is/Birta Margrét Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Viðreisn, samþykktu á fundi borgarráðs í gær breytingar á gjaldtöku fyrir bílastæði í miðborg Reykjavíkur og tengd mál sem varða bílastæði. Til afgreiðslu voru á fundinum samþykktir meirihluta umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar um að gjaldskyldutími bílastæða í miðborginni yrði styttur í samráði við hagaðila og íbúa. Einnig um að bæta öryggisgæslu og þjónustu í bílahúsum Bílastæðasjóðs, sem og tillaga fulltrúa sömu flokka um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar í borginni. „Við hétum kjósendum því fyrir sveitarstjórnarkosningarnar að taka til í bílastæðamálum í borginni. Við hétum því að stytta gjaldskyldutímann í miðborginni, skapa öruggara umhverfi í bílastæðahúsunum. Við hétum því líka að afnema hámarksfjölda bílastæða á nýbyggingarsvæðum og við erum að standa við þessi loforð sem nú hafa verið afgreidd í umhverfis- og skipulagsráði,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið. Aðspurð segir Hildur að nýr gjaldskyldutími á gjaldsvæðunum P1 og P2 sem eru í miðborg Reykjavíkur verði styttur um eina klukkustund, verði frá klukkan 9-20 á virkum dögum en á laugardögum og sunnudögum klukkan 10-20. Hingað til hefur gjaldskylda verið til klukkan 21. Hvað varðar bætt öryggi í bílastæðahúsum borgarinnar segir Hildur að lýsing og eftirlit verði bætt til að auka öryggi fólks og bifreiða. Þá verða bílastæðahúsin opin allan sólarhringinn eftirleiðis alla daga ársins, en þau hafa verið lokuð á nóttunni. „Þá var samþykkt að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar sem og að aukinn sveigjanleiki verði tryggður til að unnt verði að meta aðstæður í hverju tilviki fyrir sig,“ segir hún og nefnir að samráð verði haft við byggingaraðila í hverju tilviki fyrir sig um hver bílastæðaþörfin sé á svæðinu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hagkaup áætlar 300 þúsund króna styrk á Treyjudeginum Mbappé skotmark í áformuðu mannránsmáli Draga úr gjaldtöku bílastæða Meloni slær met Byrjar nýi maðurinn fyrir Liverpool í kvöld? Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Draga úr gjaldtöku bílastæða Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Kemur vel til greina að fjarlægja klett Breyta veglínu Norðurljósavegar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ „IKEA á hrós skilið“ Framkvæmir það sem henni dettur í hug „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Hagkaup áætlar 300 þúsund króna styrk á Treyjudeginum Mbappé skotmark í áformuðu mannránsmáli Draga úr gjaldtöku bílastæða Meloni slær met Byrjar nýi maðurinn fyrir Liverpool í kvöld? Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Stærri bilun en við áttum von á“ Brot sem verða að hafa afleiðingar „Var þetta vopnahlé?" Kemur vel til greina að fjarlægja klett Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ „IKEA á hrós skilið“ Framkvæmir það sem henni dettur í hug „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar