Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gefa ekkert upp svör Íslands til Trumps

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.9.2026 | 14:24 Gefa ekkert upp svör Íslands til Trumps Ekkert fæst uppgefið um svör Íslands til Bandaríkjanna. mbl.is/Hákon Flóki Larsen Þorsteinn Ásgrímsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Trump: Evrópubúar endurgreiði fyrir aðstoðina Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Trump hæstánægður: „Ég var ekki aðdáandi“ Vill nefna Hormússund eftir sjálfum sér Bandaríkjunum stjórnað af „óhæfasta fólkinu“ » Fleiri tengdar fréttir Íslensk yfirvöld upplýsa ekki um svör sín til Bandaríkjanna vegna spurningalista sem bandarísk stjórnvöld sendu á ríkisstjórnir annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins nýlega, en Bloomberg greindi frá spurningalistanum um miðjan síðasta mánuð. Spurningarnar snúa meðal annars að afstöðu stjórnvalda til utanríkisstefnu Bandaríkjanna, hvort fjármunum sé varið til kaupa frá bandarískum hernaðarframleiðendum, hvaða kvaðir hafi verið settar á notkun herstöðva fyrir Bandaríkin o.s.frv. Í Evrópu hafa yfirvöld víða litið til spurningalistans sem tilraunar Bandaríkjanna til að draga Evrópuþjóðir nær Bandaríkjunum hugmyndafræðilega í skiptum fyrir bandaríska vernd. Bandaríkin eru þessa stundina að yfirfara viðveru sína í Evrópu, en áætlað er að þeirri vinnu ljúki í desember. Er búist við að niðurstaðan geti verið sú að Bandaríkin dragi verulega úr viðveru sinni í álfunni og þar með mögulegum viðbúnaði ef árás er gerð. Bandaríkin vinna nú að yfirferð á hernaðarlegri viðveru sinni í Evrópu. Líklegt er að dregið verði verulega úr viðveru og viðbúnaði bandaríska hersins í álfunni. Bandarísk yfirvöld sendu bandalagsþjóðum sínum í Nató nýlega spurningarlista vegna þessarar endurskoðunar, en ekki fæst uppgefið hver svör Íslands voru. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var á meðal ráðamanna Nató-ríkja sem hittu og ræddu við Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi Nató í sumar. Skjáskot/X Fjölmörg mál komið upp undanfarið Undanfarnar vikur hafa fjölmörg mál komið upp sem benda til þess að Rússar horfi til einhverskonar aðgerða til að athuga samstöðu Nató-ríkja. Bandarískar leyniþjónustustofnanir vöruðu bandamenn sína við slíkum aðgerðum nýlega, en um gæti verið að ræða netárás upp í minni háttar árásar. Frétt af mbl.is Gætu reynt að ögra NATO í haust Þá var nýlega greint frá dróna með sprengiefni nálægt flugvelli í Leipzig í Þýskalandi sem þýsk yfirvöld og yfirvöld í Evrópusambandinu hafa sagt vera rússneskan. Danir hafa jafnframt varað við því nýlega að Rússar vinni að undirbúningi skemmdarverka og Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir ekki útliokað að Rússar ögri einu af aðildarríkjum Nató. Frétt af mbl.is Danir vara við áformum Rússa Einnig fundust sprengjur við kolaver í Þýskalandi og fóru Þjóðverjar fram á lokun rússneskrar menningarmiðstöðvar í Berlín sem talin var hýsa njósnastarfsemi Rússa. Það er því ljóst að mikil spenna ríkir þessa dagana í Evrópu og hefur þessi spurningalisti ekki hjálpað til við að dempa þá spennu. Frétt af mbl.is Sprengja sprakk við orkuver í Þýskalandi Frétt af mbl.is Næstu sex mánuðir muni skipta sköpum fyrir NATO mbl.is óskaði eftir því við utanríkisráðuneytið að fá upplýsingar um þau svör sem veitt voru Bandaríkjunum ef erindinu hefði yfir höfuð verið svarað. Í svari ráðuneytisins kemur fram að virkt samráð um langtíma viðbúnað eigi sér stað á milli Nató og Bandaríkjanna og að um umrætt gagn sé hluti af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna sem byggist á gagnkvæmu trausti og því sé ekki hægt að afhenda gögn um málið. Svar ráðuneytisins má sjá hér að neðan: „Bandaríkin og aðildarríki Atlantshafsbandalagsins eiga í virku samráði um langtíma viðbúnað og hernaðarlega getu Bandaríkjanna í Evrópu. Samráð fer fram innan bandalagsins með þátttöku allra aðildarríkja og er umræddur spurningalisti einn af mörgum þáttum í þeirri heildarvinnu. Umrætt gagn varðar samskipti Íslands og Bandaríkjanna sem byggjast á gagnkvæmu trausti - og samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins á sviði öryggis- og varnarmála. Utanríkisáðuneytið telur að eðli upplýsinganna og þeir hagsmunir sem þeim tengjast mæli gegn afhendingu gagnsins.“ Í upplýsingalögum eru takmarkanir á upplýsingarétti vegna almannahagsmuna og þar er meðal annars talið upp að heimilt sé að veita undanþágu til aðgangs almennings að gögnum þegar um öryggi ríkis eða varnarmál er að ræða. Það á einnig við um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. Tengdar fréttir Donald Trump Bandaríkjaforseti Trump: Evrópubúar endurgreiði fyrir aðstoðina Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Trump hæstánægður: „Ég var ekki aðdáandi“ Vill nefna Hormússund eftir sjálfum sér Bandaríkjunum stjórnað af „óhæfasta fólkinu“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gefa ekkert upp svör Íslands til Trumps Fyrsta lausn sinnar tegundar í Evrópu FH fær erfitt verkefni Blása til afmælissýningar Land Rover um helgina „Hreinlegast“ að afturkalla umsóknina Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Þeir stóru moka út miðum á jólasýningar Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Draga úr gjaldtöku bílastæða Samþykkja byggingu sérhæða og raðhúsa í Breiðholti „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Gefa ekkert upp svör Íslands til Trumps Fyrsta lausn sinnar tegundar í Evrópu FH fær erfitt verkefni Blása til afmælissýningar Land Rover um helgina „Hreinlegast“ að afturkalla umsóknina Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar 20 milljarðar á 20 árum Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Draga úr gjaldtöku bílastæða Samþykkja byggingu sérhæða og raðhúsa í Breiðholti „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article