Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Mbl Innlent

Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu

  • What: Contaminated school food found in Iceland
  • Impact: Children in six schools affected
Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.9.2026 | 16:16 Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Bjölluleifar fundust í kjötsúpu sem borin var fram fyrir leikskólabörn í Breiðholti. Á myndinni er hrísgrjónabjalla en ekki liggur fyrir hvers konar bjöllutegund fannst í matnum. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/mbl.is/wikipedia. Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Skordýr fundust í skólamat sem borinn var fram fyrir í leik- og grunnskólabörn í sex skólum í hádeginu í dag. Tilkynnt var um skordýrin á fjórum leikskólum í Breiðholti í Reykjavík og tveimur grunnskólum í Garðabæ og Sandgerði. Skólamatur ehf. útbjó matinn. Skordýrin voru nánar tiltekið bjöllur sem fundust í kjötsúpu sem börnunum var boðið upp á í hádeginu. Súpan var svo send á skóla sem fyrirtækið þjónustar. Rekja bjöllurnar til hrísgrjóna frá Garra Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar, segir í samtali við mbl.is í dag að „bjölluleifar“ hefðu fundist í súpunni. Þær hefðu borist með hrísgrjónum sem fyrirtækið keypti af birgja. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kemur fram að hrísgrjónin hafi komið frá fyrirtækinu Garra. „Um er að ræða frávik sem fannst í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra en ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að rekja megi frávikið til framleiðslu, matseldar, framreiðslu eða hreinlætis hjá Skólamat,“ segir í yfirlýsingunni. „Þetta voru leifar af bjöllum sem voru í súpunni,“ segir Jón í samtali við mbl.is. Hrísgrjónunum fargað Skólamatur segir í yfirlýsingu viðbragðsferla hafa verið virkjaða um leið og umfang málsins varð ljóst. Hrísgrjónin hafi verið tekin úr notkun og þeim fargað. Jafnframt hafi rekjanleiki hráefnisins verið staðfestur og málið tekið upp við Garra. Að sögn fyrirtækisins var heilbrigðiseftirlitinu tilkynnt um málið og fulltrúar þess komu á starfsstöð Skólamatar til að fara yfir aðstæður og verklag. Skólamatur segir að engar athugasemdir hafi verið gerðar að lokinni þeirri skoðun og að staðfest hafi verið að ekki hafi stafað heilsufarsleg hætta af atvikinu. „Gerum alls ekki lítið úr málinu“ Jón segir í samtali við mbl.is að bjöllurnar hafi verið í lokuðum umbúðum með hrísgrjónum en komið í ljós þegar farið var að skammta matinn á diska. „Við erum enn að ná utan um málið,“ segir Jón. Hann lagði áherslu á að fyrirtækið tæki málið alvarlega. „Við gerum alls ekki lítið úr málinu. Við erum að forgangsraða til þess að fá heildstæðar upplýsingar um málið,“ sagði Jón. Í yfirlýsingu Skólamatar segir sömuleiðis að fyrirtækið harmi atvikið mjög og muni fylgja málinu eftir með birgjanum og eftirlitsaðilum. Kjötsúpa áfram á boðstólum á Ljósanótt Atvikið hefur ekki áhrif á fyrirhugaða kjötsúpugerð Skólamatar á Ljósanótt í Reykjanesbæ í kvöld. Fyrirtækið segist þar ætla að bjóða upp á kjötsúpu líkt og undanfarin ár. Súpan verði gerð úr nýju og fersku hráefni frá öðrum birgja. „Við hörmum innilega atvikið sem átti sér stað í dag og ítrekum enn fremur að atburðir dagsins tengjast ekki framleiðslu, framreiðslu og verkferlum Skólamatar heldur fráviki í aðkeyptu hráefni,“ segir að lokum í yfirlýsingunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sérsveitin kölluð til á Akureyri Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vinnur lúxusbíl fyrir að fara holu í höggi Allir eru einhvers konar „nörd“ Eitt fæðubótarefni getur ekki leyst vandann Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Draga úr gjaldtöku bílastæða Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru „Var þetta vopnahlé?" Þeir stóru moka út miðum á jólasýningar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Draga úr gjaldtöku bílastæða „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Sérsveitin kölluð til á Akureyri Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vinnur lúxusbíl fyrir að fara holu í höggi Allir eru einhvers konar „nörd“ Eitt fæðubótarefni getur ekki leyst vandann Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Draga úr gjaldtöku bílastæða Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Æfingin á Íslandi gekk vonum framar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Draga úr gjaldtöku bílastæða „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article