Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.9.2026 | 21:50 Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Frá Breiðholti. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hafnaði á síðasta ári umsókn eiganda einbýlishúss í Hólahverfi í Breiðholti um leyfi fyrir umtalsverðum breytingum á eigninni sem þó hafði verið ráðist í fyrir hálfri öld. Samkvæmt skipulagi var um einbýlishús að ræða með íbúð á efri hæð upp á 130,2 fermetra, 57,5 fermetra íbúð í kjallara og 34 fermetra kjallara. Í raun voru sjö íbúðir í eigninni. Á efri hæð er íbúð sem er 172,7 fermetrar og í kjallaranum fimm íbúðir í 223,1 fermetra rými, eða tæplega fjórfalt stærra rými en heimild var fyrir. Að lokum var í bílskúrnum 34 fermetra íbúð. Kom þetta til vegna þess að kjallarinn var stækkaður verulega með því að grafa út sökkulrými. Sögðu eigendur að eignin hefði verið í núverandi standi frá 1998, en eignin mun hafa verið í þessu ástandi frá upphafi, eða í yfir 50 ár. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýlegum úrskurði upplýsinganefndar umhverfis- og auðlindamála. Eftir höfnun byggingarfulltrúans á umsókninni og þegar ljóst var að eignin var ekki í samræmi við skipulag sendi byggingarfulltrúinn eigendum fasteignarinnar bréf með kröfu um að færa fasteignina aftur til samræmis við samþykkta aðaluppdrætti og var þeim veittur 60 daga frestur til framkvæmda, en annars kæmi til 25 þúsund króna dagsekta. Var það þessi ákvörðun sem eigendurnir kærðu til úrskurðarnefndarinnar. Má bara vera ein aukaíbúð Reykjavík benti í rökstuðningi sínum á að skipulag hússins væri ekki í samræmi við skipulag né hverfaskipulag Efra-Breiðholts, en það var samþykkt árið 2022. Í hverfaskipulaginu er heimild til að útbúa nýjar íbúðir á jarðhæðum eða kjöllurum fjölbýlishúsa þar sem aðstæður leyfi, en breytingarnar þurfi að fylgja ákvæðum reglugerðar og leiðbeiningum sem settar eru fram í hverfisskipulaginu. Í hverfisskipulaginu komi fram að heimilt sé að hafa eina aukaíbúð í hverju rað-, par- og einbýlishúsi. Stærð aukaíbúðar megi vera allt að þriðjungur af heildarstærð húss. Sem fyrr segir er kjallararýmið í heild stærra en allt annað rými hússins og bílskúrsins til samans. Borgin bendir jafnframt á að hámarksbyggingarmagn á lóðinni sé 287 fermetrar og hámarksnýtingarhlutfall 0,41. Samkvæmt þeim uppdráttum sem liggja fyrir er heildarbyggingarmagn nú 429,5 fermetrar og nýtingarhlutfall 0,61. Því fari mannvirkið verulega fram úr því sem heimilt sé. Töldu sig vera í góðri trú Eigendur fasteignarinnar bentu í sínum rökstuðningi á að eignin hefði verið í núverandi ástandi í marga áratugi, en tekið er fram í úrskurðinum að hafi verið frá upphafi eða í yfir hálfa öld. Þeir hafi því verið í góðri trú og því haft frumkvæði að því að sækja um breytinguna. Þá nefna þeir að leigusamningar séu í gildi við leigutaka, en um sé að ræða ótímabundna leigusamninga með að lágmarki 12 mánaða uppsagnarfresti og því sé ekki hægt að bera fólkið út innan 60 daga. Bent er á að hluti leigutaka sé jafnframt skjólstæðingar félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Eigendurnir nefna einnig að leigusamningarnir hafi verið þinglýstir og leigutakar fengið húsaleigubætur greiddar. Nefna þeir einnig að byggingaryfirvöld hafi áður lagt blessun sína yfir sambærilegar framkvæmdir og var vísað til eldri fréttamála sem tekið er fram að hafi verið tengt þjóðþekktum einstaklingi. Þá hafi ekki verið krafist niðurrifs og að eigendur hafi því mátt gera sér væntingar um slíkt nú. Tekur að hluta undir með eigendunum Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar er að ljóst sé að skipulag hússins sé sem stendur ekki í samræmi við skipulag eða hverfaskipulag Efra-Breiðholts. Fallist er á með borginni að það teljist til gæslu almannahagsmuna að sjá til þess að byggð þróist í samræmi við gildandi skipulag. Hins vegar telur kærunefndin að veita verði rýmri frest til að verða við kröfunni, meðal annars út frá stöðu leigutaka í eigninni. Er niðurstaðan því að fella úr gildi kvöð eigenda að færa fasteignina í fyrra horf innan 60 daga, en annað í ákvörðun byggingarfulltrúa látið standa óraskað. Geta farið aðra leið... Úrskurðarnefndin vekur einnig athygli eigendanna á því að ástæða þess að byggingarmagn fasteignarinnar sé komið verulega fram yfir heimildir hverfisskipulagsins er ekki vegna óleyfilegra viðbygginga eða aukabygginga á lóð, heldur vegna þess að sökkulrými í kjallara var grafið út. Vísað er í heimild í hverfisskipulaginu þar sem segir að heimilt sé „að taka í notkun ósamþykkt rými í kjöllurum húsa sem til hafa orðið s.s. vegna náttúrulegs landhalla, enda mun umfang húss ekki aukast.“ Þá hafi einnig verið samþykkt aukið nýtingarhlutfall á sambærilegum lóðum í nágrenninu þar sem grafið var úr sökkulrými kjallara. ...en íbúðirnar hins vegar of margar Án þess að taka afstöðu til þess hvort nýtt erindi yrði samþykkt bendir nefndin á að hægt sé að sækja um að fá samþykkt þetta rými sem hefur verið grafið út með því að leggja fram uppfærða byggingarleyfisumsókn, en taka þyrfti mið af gildandi skipulagsskilmálum, þ.á.m. um fjölda íbúða. Virðist því vera bent á að hægt sé að fá aukna stærð eignarinnar samþykkta, en að fjöldi íbúða umfram aðalíbúðina og eina aukaíbúð sé í andstöðu við skipulag. Væntanlega þýðir það að íbúar sem nú búa í eigninni þurfa að stórum hluta að flytja út, en hafa talsvert rýmri tíma en þeir 60 dagar sem upphaflega voru gefnir. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og leikurinn stöðvaður Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Rafmagn komið aftur á Fyrsta tap Real Madrid Allt svart í Keiluhöllinni Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Breyta veglínu Norðurljósavegar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Sérsveitin kölluð til á Akureyri „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Stöðvaður á 190 km hraða Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og leikurinn stöðvaður Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Rafmagn komið aftur á Fyrsta tap Real Madrid Allt svart í Keiluhöllinni Umræðan Stóra verkefnið bíður Erindi til alþingismanna Íslendinga Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Írskir miðlar fjalla um banaslysið Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Sérsveitin kölluð til á Akureyri „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Stöðvaður á 190 km hraða Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn

Share this article