Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á ljósastaur Björgvin Brynjarsson Sjö voru flutt á slysadeild eftir að bifreið var ekið á ljósastaur. RÚV / Ragnar Visage Sjö voru fluttir á slysadeild til skoðunar eftir að bíl var ekið á ljósastaur við bensínstöð Olís í Norðlingaholti í ellefta tímanum í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega. Einn dælubíll og fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang, að sögn slökkviliðsins. Fyrir 4 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Minnst þrír týndu lífi í loftárásum Ísraelshers á Líbanon Ísraelsher gerði loftárásir á suður- og austurhluta Líbanons í kvöld með þeim afleiðingum að minnst þrír voru drepnir. Á þriðja tug særðist. Vopnahlé er í gildi milli Ísraels og Hezbollah. Varnarmálaráðherra Ísraels segir árásirnar í fælingarskyni. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Sigur hjá FH í fyrsta leiknum undir stjórn Arons FH sigraði Stjörnuna 38-31 í 1. umferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld. Þetta var fyrsti deildarleikur FH undir stjórn Arons Pálmarssonar sem tók við sem þjálfari liðsins í vor. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Rafmagn alls staðar komið á Björgvin Brynjarsson Rafmagn er alls staðar komið á eftir rafmagnsleysi í Úlfarsárdal í Grafarholti, Grafarvogi, Mosfellsbæ og á Kjalarnesi í kvöld. Greint er frá þessu í tilkynningu á vef Veitna. Í tilkynningu á vef Veitna segir að bilunina megi rekja til spenna sem slógu út í tengivirki í aðveitustöð við Korpu. Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir að rafmagnsleysið í kvöld tengist ekki rafmagnsleysinu sem varð á svipuðu svæði 14. ágúst. Meðal annars varð rafmagnslaust í Mosfellsbæ RÚV / Hjalti Haraldsson Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Leik hætt og frestað í Mosfellsbæ vegna rafmagnsleysis Finna þarf nýjan leiktíma til að spila síðari hálfleik í viðureign Aftureldingar og Víkings í Olísdeild karla í handbolta. Rafmagn fór af í Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal í kvöld og því var ekki hægt að klára handboltaleikinn. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Alexander Isak afgreiddi Ipswich Liverpool vann í kvöld sinn fyrsta deildarsigur á leiktíðinni þegar liðið sótti 2-0 útisigur til Ipswich. Sænski framherjinn Alexander Isak skoraði bæði mörk leiksins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópa Möguleiki á „svartholi fyrir mannréttindabrot“ í brottvísunarbúðum Amnesty International fordæma áform fimm ríkja ESB um brottvísunarstöð utan ESB. Framkvæmdastjóri samtakanna segir það í eðli slíkra stöðva að brjóta á réttindum fólks. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Jarðskjálfti af stærð 3,0 austan Kleifarvatns Jarðskjáflti af stærð 3,0 varð við Brennisteinsfjöll austan Kleifarvatns í kvöld. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Rafmagnsleysi í Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og á Kjalarnesi Rafmagnslaust er í Mosfellsbæ, Grafarvog, hluta Grafarholts og á Kjalarnesi. Veitur vinna að því að finna orsök rafmagnsleysisins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menning Aldrei fleiri í bíó: „Þetta er önnur upplifun og fólk er farið að sakna þess“ Tekjur íslenskra kvikmyndahúsa hafa aukist um tæplega 40% milli ára. Framkvæmdastjóri Smárabíós segir framtíð kvikmyndahúsa bjarta þrátt fyrir áskoranir síðustu ára. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Bilun í Mjóafirði hefur áhrif á farsíma- og netþjónustu Guðmundur Atli Hlynsson Bilun í Mjófirði hefur áhrif á farsíma- og netþjónustu í firðinum. Á vef Mílu segir að líklega sé slitinn ljósleiðarastrengur orsök bilunarinnar en unnið er að greiningu á henni. Bilunin hefur staðið síðan klukkan 10 í morgun, samkvæmt Atla Stefáni Yngvasyni, upplýsingafulltrúa Mílu. Hann segir að leitað sé að slitinu við krefjandi aðstæður, í þverhníftum klettum þangað sem aðeins er hægt að komast fótgangandi. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Skrúfa fyrir vatn og rafmagn 1. nóvember Skrúfað verður fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða í byrjun nóvember og búsetu þar með sjálfhætt. Kona sem þar býr segir íbúa vera að fara á límingunum af kvíða. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Meðlimir Fjölmiðlanefndar verði að gæta vel að hæfi sínu Hæfi formanns Fjölmiðlanefndar er ekki á borði ráðuneytis þar sem nefndarmönnum ber sjálfum að leggja mat á hæfi sitt. „Þetta gefur þó tilefni til að árétta þá afstöðu mína að nefndarmenn gæti vel að hæfi sínu,“ segir Logi Már Einarsson ráðherra. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Atvinnuleysi hjá erlendum ríkisborgurum 9,3% en 2,7% hjá Íslendingum Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum. Þar var það 7,3% að meðaltali á fyrri hluta ársins en 4,5% á landinu öllu, samanborið við 3,9% á sama tímabili árið 2025. Hlutfall erlendra ríkisborgara á íslenskum vinnumarkaði er hvergi hærra en á Suðurnesjum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Mikilvægt að missa ekki vonina þótt einnar og hálfrar gráðu hlýnun sé óumflýjanleg Ný skýrsla Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna dregur upp alvarlega mynd af stöðu loftslagsmála í heiminum. Formaður Loftslagsráðs segir mikilvægt að við missum ekki sjónar á loftslagsmarkmiðum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Leggur til vopnahlé á meðan Witkoff og Kushner dvelja í Moskvu og Kyiv Úkraínuforseti leggur til að herir Rússlands og Úkraínu hætti öllum loftárásum um helgina á meðan erindrekar Bandaríkjanna heimsækja ríkin. Hugmyndin er að blása lífi í tilraunir til að semja um stríðslok. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Skordýr í hádegisverði í sex skólum Skordýr fundust í hrísgrjónum sem voru höfð í hádegismat í sex skólum í dag. Skólamatur segir að heilsufarsleg hætta hafi ekki stafað af atvikinu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Vestmannaeyjabær mátti ekki segja kennara upp fyrirvaralaust Innviðaráðuneytið úrskurðaði nýverið að Vestmannaeyjabæ hefði ekki verið heimilt að segja grunnskólakennara upp fyrirvaralaust í fyrra. Málið kom til vegna umsóknar um Erasmus+ námskeið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Norræna blaðamannasambandið áhyggjufullt yfir þróun á Íslandi Norræna blaðamannasambandið lýsir þungum áhyggjum af stöðu fjölmiðla á Íslandi eftir að Sýn hætti útsendingu sjónvarpsfrétta. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þrautir Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni? Taktu þátt í fréttagetraun vikunnar og sjáðu hvað þú manst úr helstu fréttum síðustu daga. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir George Lucas afhjúpar nýtt safn Lucas-safnið um sagnalist verður opnað síðar í þessum mánuði í Los Angeles í Bandaríkjunum. Ásamt munum tengdum kvikmyndaheimi Geoge Lucas verða verk eftir Banksy og Fridu Kahlo til sýnis. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Celine Dion söng óvænt fyrir aðdáendur á götu úti Stórsöngkonan Celine Dion gaf sér góðan tíma til að taka undir með aðdáendum sínum sem sungu eitt af lögum hennar á götu úti í París í vikunni. Næstu vikur heldur hún tónleika í borginni. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dómari lýsir réttarhöld yfir Lindsay Clancy ógild Dómari í réttarhöldunum yfir Lindsay Clancy, sem er ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú, hefur lýst þau ógild. Kviðdómur komst ekki að niðurstöðu um sakhæfi hennar þrátt fyrir að hafa rætt málið í viku. Rétt er að vara við lýsingum í fréttinni. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Caitlin Clark í ham þegar Bandaríkin unnu stórt Ríkjandi heimsmeistarar kvenna í körfubolta, Bandaríkin, unnu sinn fyrsta leik á HM í dag þegar liðið hafði betur gegn Kínverjum. Caitlin Clark var öflug í leiknum og átti til að mynda 11 stoðsendingar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Sextíu milljónir í langþráðar viðgerðir í Breiðdalsskóla Framkvæmdir eru hafnar innan- og utanhúss við grunnskólann á Breiðdalsvík, sem er hluti af Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Húsið hefur lekið í áraraðir, segir skólastjóri. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sérsveitin kölluð að heimahúsi á Akureyri Ólöf Rún Erlendsdóttir Lögreglan á Norðurlandi eystra var kölluð að íbúðarhúsi við Engimýri á Akureyri um klukkan hálf tvö í dag. Sérsveit ríkislögreglustjóra fór einnig á vettvang. Málið er enn í vinnslu og lögregla gefur hvorki upp hvort einhverjir séu í haldi né hvers vegna lögregla þarfnaðist liðsinnis sérsveitarinnar. Öðrum íbúum hafi þó ekki verið hætta búin. Frekari upplýsingar verði veittar síðar. Lögregla var kölluð að heimahúsi á Brekkunni á Akureyri í dag. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Treyjudagurinn: Mynduðu hring í kringum Öldutúnsskóla Nemendur og starfsfólk í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði mynduðu hring utan um skólann í tilefni af treyjudeginum. Hann er haldinn til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Fimm fáránlega fönkí á föstudegi Það er fönkið sem tekur yfir fimmuna þennan föstudag með nýjum lögum frá Erykah Badu ásamt Thundercat, FKJ ásamt Eryn Allen Kane, Greek, Leon Bridges og Quavo. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Árás á höfuðstöðvar öryggisstofnunar Úkraínu Dagný Hulda Erlendsdóttir Rússlandsher gerði í dag drónaárás á höfuðstöðvar SBU, öryggisstofnunar Úkraínu, í Kyiv. Níu manns, hið minnsta, særðust í árásinni, samkvæmt Kyiv Independent. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir í færslu á Telegram að ljóst sé að árásardrónum hafi verið beint að byggingunni. Utanríkisráðherra Úkraínu, Andri Sibiya, fordæmir árásina harðlega og segir hana mikla stigmögnun sem kalli á einörð viðbrögð. Rússlandsher hafi gert þessa árás þrátt fyrir að yfir standi tilraunir til að hefja viðræður á ný. Þar með sé verið að hafna diplómatískum leiðum. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu. AP / Francisco Seco Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Innblásin af Arlo Parks og Emilíönu T