Innlent | Morgunblaðið | 5.9.2026 | 8:00 Neiið sem á að gilda Björn Bjarnason mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Vettvangur Pistill Björns Bjarnasonar úr Morgunblaðinu Íslenska þjóðin tók skýra afstöðu 29. ágúst. Nei sögðu 52,84% kjósenda við því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið en 47,16% sögðu já. Kjörsókn var 82,5%. Ríkisstjórnin fékk ekki umboðið sem hún óskaði eftir. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, virðist þó ekki líta á niðurstöðuna sem höfnun á þeirri pólitísku leið sem hún hafði markað. Á Facebook-síðu sinni talaði hún um að verkefnin héldu áfram. Evrópusambandið hefði aldrei verið markmið í sjálfu sér heldur ein leið að stærra markmiði um langtímastöðugleika, öryggi og sterkari stöðu Íslands. Þótt þessi leið yrði ekki farin að þessu sinni breyttist það markmið ekki. Orðin „að þessu sinni“ segja mest um afstöðu hennar. Þjóðin hafnaði því að aðildarviðræður yrðu hafnar að nýju. Formaður Viðreisnar og höfundur ákvæðisins um þjóðaratkvæðagreiðsluna segir að aðeins verði horfið frá leiðinni um stundarsakir. Starfið haldi áfram. Hvernig getur ráðherrann sagst virða niðurstöðuna en jafnframt lýst henni sem tímabundinni hindrun? Þetta er í þeim anda ESB að svarið nei sé tímabundið en já varanlegt. Frumkvæðið er hjá íslenskum stjórnvöldum. Þorgerður Katrín fór til Brussel 15. janúar 2025 og hóf samtöl við þá sem fara með stækkunarmál ESB. Framkvæmdastjórnin tók áhuga hennar fagnandi. Umsóknin frá 2009 var sögð enn gild, Ísland kallað umsóknarríki og talað um skjóta endurupptöku viðræðna. Ríkisstjórnin túlkaði áhuga forráðamanna ESB sem merki um sterka samningsstöðu. Kristrún Frostadóttir sagði 6. mars 2026, þegar ákvörðunin um þjóðaratkvæðagreiðsluna var kynnt, að á þessum tíma mæti ríkisstjórnin samningsstöðuna sterka. Engin bindandi loforð lágu þó fyrir um sjávarútveg eða landbúnað. Aðildarríkin 27 höfðu ekki samþykkt íslenskar sérreglur og ríkisstjórnin hafði sjálf ekki skilgreint nákvæm samningsmarkmið sín. Glugginn sem ráðherrarnir sáu var því ekki samningsgluggi í efnislegri merkingu. Hann hafði opnast í samskiptum þeirra við framkvæmdastjórnina og áhrifamikla stjórnmálamenn innan ESB. Ráðherraráð ESB samþykkti 16. júní 2026 að vera við öllu búið, segðu Íslendingar já, til að hefja ferlið við að taka viðræðurnar upp að nýju. Framkvæmdastjórnin fékk þannig aðildarríkin til að undirbúa næsta skref. Embættismenn hennar ræddu síðan um að Ísland gæti náð Svartfjallalandi í stækkunarferlinu og að ríkin gætu jafnvel gengið saman í sambandið árið 2028. Þetta hefði varla gerst nema fulltrúar framkvæmda stjórnarinnar teldu raunhæfar líkur á íslensku jái. Íslenskir ráðherrar hljóta að hafa gert viðmælendum sínum grein fyrir mati sínu á stöðunni og talið sigur málstaðar síns líklegan. Ríkisstjórnin leit á ákafa forráðamanna ESB sem staðfestingu á eigin mati. Framkvæmdastjórnin leit á frumkvæði ríkisstjórnarinnar sem tækifæri til að opna glufu í stækkunarferlið. Hvor aðilinn styrkti trú hins. Báðir höfðu rangt fyrir sér. Viðreisn starfaði ekki aðeins með framkvæmdastjórninni. Flokkurinn nýtti einnig tengsl sín við ALDE-flokkasamtökin og Renew Europe, þingflokk frjálslyndra á Evrópuþinginu. Leiðtogi þessara flokka og hugsjónasmiður, Guy Verhofstadt, hvatti Viðreisnarmenn á landsþingi flokksins í september 2025 til að láta andstæðinga aðildar hvorki ráða orðræðunni hér né framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Valérie Hayer, formaður Renew Europe á ESB-þinginu, hvatti sambandið til að leggja allt í sölurnar til að fá Ísland inn. Aðild Íslands þjónaði að hennar mati geópólitískum hagsmunum ESB á norðurslóðum. Á vefsíðu ALDE sagði að eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna myndu frjálslyndir halda framtíð Íslands innan Evrópu á dagskrá. „Niðurstaðan kann að hafa lokað einum dyrum í bili en hún bindur ekki enda á víðari umræðu um stöðu Íslands í Evrópu,“ sagði þar 1. september. Sama viðhorf birtist hjá Euronews og hugveitunni CEPS. Þar var framkvæmdastjórnin gagnrýnd fyrir að hafa þagað of lengi og látið andstæðinga aðildar skilgreina málið. Minna fór fyrir þeirri spurningu hvort forráðamenn ESB og íslenskir viðmælendur þeirra hefðu einfaldlega rangmetið vilja þjóðarinnar. Viðreisn var stofnuð um kröfuna um aðild Íslands að ESB. Flokkurinn hefur vissulega fleiri stefnumál, en aðildarbaráttan hefur frá upphafi skapað honum sérstöðu. Hún sameinar flokkinn, tengir hann við evrópska flokka og réttlætir þá stöðu sem formaður hans hefur tekið sér í íslenskum stjórnmálum. Þjóðaratkvæðagreiðslan var því ekki aðeins prófraun á stefnu ríkisstjórnarinnar. Hún var prófraun á sjálfa tilveru Viðreisnar sem stjórnmálaflokks. Þegar meirihluti þjóðarinnar hafnaði viðræðunum stóð formaður flokksins frammi fyrir erfiðum kosti. Hún gat viðurkennt að kjósendur hefðu hafnað helsta stefnumáli flokksins eða túlkað niðurstöðuna sem stundarfyrirbrigði og haldið baráttunni áfram. Hún valdi síðari kostinn. Þess vegna er rétt að spyrja hvort yfirlýsingin um að „starfið haldi áfram“ snúist ekki frekar um framtíð Viðreisnar en framtíð Íslands. Með því að gera neiið tímabundið getur formaðurinn varðveitt erindið, tengslin við evrópsku flokksfjölskylduna og vonina um nýja tilraun. En þjóðaratkvæðagreiðsla er ekki ráðgefandi skoðanakönnun fyrir stjórnmálaflokk sem ætlar að bíða eftir hagstæðari niðurstöðu. Þjóðin var spurð hvort hefja ætti aðildarviðræður að nýju. Hún sagði nei. Viðreisn og ríkisstjórnin öll verða að viðurkenna það og ekki sem stundarfyrirbrigði. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Krefst þess að Seðlabankinn lækki vexti Pistill: Neiið sem á að gilda Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar Gamla ljósmyndin: Skópússun í miðjum leik Óraunverulegt að sjá sjálfa sig á auglýsingaskilti í Tokyo Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið Allt svart í Keiluhöllinni Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Sjö á slysadeild eftir árekstur Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Rafmagn komið aftur á Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Krefst þess að Seðlabankinn lækki vexti Pistill: Neiið sem á að gilda Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar Gamla ljósmyndin: Skópússun í miðjum leik Óraunverulegt að sjá sjálfa sig á auglýsingaskilti í Tokyo Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt svart í Keiluhöllinni „Var þetta vopnahlé?" Rafmagn komið aftur á Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Sjö á slysadeild eftir árekstur Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Rafmagn komið aftur á Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn