Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hetjuleg barátta Fjölmiðlanefndar

Read Full Article →

Af öllum ríkisstofnunum landsins hlýtur sú tilgangslausasta að vera Fjölmiðlanefnd. Það sem endurspeglar tilgangsleysi nefndarinnar hvað best er atlaga hennar að hlaðvörpum og stjórnendum þeirra um að skrá beri hlaðvörpin sem fjölmiðla. Nokkuð hefur verið fjallað um deilur Ólafar Skaftadóttur og Kristínar Gunnarsdóttur, stjórnenda hlaðvarpsins Komið gott, og Þórarins Hjartarsonar, stjórnanda hlaðvarpsins Einnar pælingar, við nefndina en skiljanlega telja þau hlaðvörp sín ekki geta talist fjölmiðill. Menningarráðuneyti Loga Einarssonar lýsti því yfir fyrr í sumar að fyrirhugað væri að hefðbundin hlaðvörp falli ekki lengur undir skráningarskyldu Fjölmiðlanefndar. Þrátt fyrir það ákvað nefndin að stíga bensíngjöfina í botn og sekta Þórarin um hálfa milljón króna fyrir að skrá ekki hlaðvarp sitt sem fjölmiðil. Til að bíta höfuðið af skömminni er enginn starfsmaður nefndarinnar skrifaður fyrir tölvupóstinum þar sem honum var tilkynnt um sektina. Hrafnarnir leggja til að í stað þess að tryggja einungis hlaðvörpum skjól undan afskiptasemi Fjölmiðlanefndar verði gengið skrefi lengra og öllum tryggt það, með því að leggja stofnunina niður. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article