Innlent | Morgunblaðið | 5.9.2026 | 8:51 Allir verið mjög skilningsríkir Blóðgjöf Einstaklingsbundið áhættumat ræður ferðinni varðandi blóðgjöf. Morgunblaðið/Hari Setja bókamerki Vel hefur gengið í Blóðbankanum síðan breyting á gildandi reglugerð tók gildi í byrjun mánaðarins en hún felur í sér samræmdar reglur um blóðgjöf fyrir alla einstaklinga, óháð kyni eða kynhneigð. „Þetta hefur gengið mjög vel og allir hafa verið mjög skilningsríkir um að þetta sé nýtt fyrir alla. Við höfum fengið góðar viðtökur hjá þeim sem hafa komið,“ segir Ína Björg Hjálmarsdóttir, deildarstjóri hjá Blóðbankanum. Sömu viðmið fyrir alla í spurningalistum Í reglugerðinni eru skilgreind viðmið um áhættusamt kynlíf sem gilda óháð kyni og kynhneigð en slík hegðun getur leitt til tímabundinnar frávísunar blóðgjafa vegna hættu á smitsjúkdómum. Ákvörðun um hvort einstaklingur geti gefið blóð verður því byggð á einstaklingsbundnu áhættumati en ekki því hvaða hópi viðkomandi tilheyrir. „Allir sem koma í Blóðbankann og vilja gerast blóðgjafar og allir sem koma og vilja halda áfram að gefa blóð þurfa að svara spurningalistum. Þar eru sömu viðmið fyrir alla. Við erum með nokkuð stífar reglur eins og alltaf, sem ganga út á að tryggja öryggi blóðgjafanna sjálfra og blóðþeganna,“ greinir Ína Björg frá, aðspurð. Áður hefur Blóðbankinn innleitt kjarnsýrupróf, svokallað NAT-próf, til skimunar á blóðbornum smitsjúkdómum. Þessi próf eru næmari en eldri próf og því er öryggi blóðþega betur tryggt en áður. Ína segir Blóðbankann hafa farið í gegnum öll heilsufarsviðmið sín með tilkomu reglugerðarbreytingarinnar og nýju DNA-prófanna, sem hafi verið í eitt ár í prófun. Fram hefur komið að um 2.500 nýja blóðgjafa vantar á ári hverju. Spurð hvort breytt reglugerð gæti orðið til þess að fjölga blóðgjöfum segir hún það eiga eftir að koma betur í ljós en hún vonist vitaskuld til þess. Hún bendir fólki á að nýjustu upplýsingar um blóðgjöf sé að finna á blodbankinn.is. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allir verið mjög skilningsríkir Listafólk er ekki einnota Krefst þess að Seðlabankinn lækki vexti Pistill: Neiið sem á að gilda Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Allt svart í Keiluhöllinni Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumar Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Rafmagn komið aftur á Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Allir verið mjög skilningsríkir Listafólk er ekki einnota Krefst þess að Seðlabankinn lækki vexti Pistill: Neiið sem á að gilda Aðsend grein: Nytsamir meinleysingjar Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Breyta veglínu Norðurljósavegar „Var þetta vopnahlé?" Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Mest lesið Í gær Í vikunni „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Sjö á slysadeild eftir árekstur Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Rafmagn komið aftur á Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn