Íslenska tæknilausnin Eignaskanni fór nýlega í loftið en um er að ræða sprotaverkefni sem nýtir gervigreind til að fá skýrari mynd af heildarverðmæti fasteigna. Hugmyndin spratt af óánægju með skort á fullnægjandi upplýsingum um verðmat íbúða á Íslandi. Stofnendur Eignaskanna eru þeir Arnar Kjartansson, Stefán Atli Rúnarsson og Steingrímur Þór Ágústsson. Þeir hafa allir ólíkan bakgrunn en Steingrímur er fasteignasali og hagfræðingur, Stefán hefur starfað við markaðsmál og miðlun og Arnar er tæknimaður sem sá meðal annars um þróun vefsíðunnar. Arnar segir að tilgangur lausnarinnar, sem hefur verið í vinnslu frá því í desember í fyrra, sé ekki að taka við af verðmati fasteignasala, heldur að fylla upp í þær eyður sem myndast þegar kemur að fasteignamati. „Þú tekur bara myndir af eigninni og fyllir inn grunnupplýsingar og á einni mínútu getur þú fengið lista yfir mögulegar endurbætur sem þú getur gert. Fasteignasali með Eignaskanna að vopni getur líka gefið viðskiptavinum ráð um endurbætur og sýnt hversu mikið þær geta hækkað virði eignarinnar.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .