Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vöru­gjöldin gjör­breytt lands­laginu

Read Full Article →

Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, segir að bílamarkaðurinn sé að gjörbyltast í kjölfar vörugjaldabreytinganna sem tóku gildi síðustu áramót. Umræddar breytingar fólu í sér að vörugjöld hækkuðu umtalsvert fyrir tvinn- og tengiltvinnbíla og bíla sem ganga alfarið fyrir bensíni eða dísil, en vörugjöld voru felld niður á nýjum rafbílum. „Á fyrstu átta mánuðum ársins keypti 82% einstaklinga raf-fólksbíla og 67% fyrirtækja og ég held að hlutfall einstaklinga muni fara upp í 90-95% á næsta ári, sem er sambærilegt og það sem Noregur og Danmörk eru komin í. Fyrirtækin eru líka alveg á fullu að færa sig yfir í rafbílana.“ Hinar umfangsmiklu vörugjaldabreytingar stjórnvalda voru gagnrýndar harðlega af fyrirtækjum í geiranum, ekki síst í ljósi lítils fyrirvara. Stórir rekstraraðilar hafa sagt að þær hafi valdið uppsöfnun birgða í ákveðnum vöruflokkum en skorti í öðrum. Egill tekur undir þetta og segir breytingar sem þessar geta reynst mjög krefjandi í bransa með löngum aðfangakeðjum. „Moksölubíll“ væntanlegur Í viðtali í Viðskiptablaði vikunnar segir Egill að bílamerkin hjá Brimborg hafi sett lítið af nýjum týpum á markað upp á síðkastið. Á næstunni sé hins vegar von á nokkrum nýjum bílum. „Þetta kemur svolítið í bylgjum.“ Hann nefnir í þeim efnum nýjan Mazda rafmagnsbíl, Mazda, CX-6e sem er væntanlegur í september. Eins er von á nýjum bíl frá Polestar, Polestar 5, í næsta mánuði og heimsfrumsýning verður á nýrri útfærslu af Polestar 4 í september næstkomandi. Sjá einnig EX60 verði ein verðmætasta út­flutnings­vara Svíþjóðar „Í haust erum við að fá Volvo EX60 sem er rafbíll frá Volvo sem er að fá mjög góða dóma. Það verður moksölubíll miðað við hvernig forsalan gengur nú þegar,“ segir Egill og bætir við að Brimborg hafi tekið við fyrsta EX60 reynsluakstursbílnum í byrjun síðustu viku. Egill gerir ráð fyrir að Volvo EX60 bílinn verði „moksölubíll“. © Aðsend mynd (AÐSEND) Á næsta ári koma síðan til viðbótar fjórir nýir bíla frá Volvo en það verður nánar kynnt seinnipart september. Fréttin er hluti af viðtali við Egil í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast viðtalið í heild sinni hér og annað efni úr blaðinu hér .

Share this article