Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samfylking með böggum hildar

Read Full Article →

Nýr meirihluti í borginni, undir forystu Hildar Björnsdóttur, er byrjaður að taka til hendinni. Ráðist hefur verið í hagræðingaraðgerðir á velferðarsviði, skóla- og frístundarsviði og skrifstofu borgarstjóra, sem fólu m.a. í sér löngu tímabærar uppsagnir. Það er ekki fagnaðarefni þegar fjöldi fólks missir vinnuna en þar sem rekstur borgarinnar hefur ekki staðið undir sér um margra ára skeið er ljóst að slíkar aðgerðir eru óumflýjanlegar. Ljóst er að svipaðar hagræðingaraðgerðir eru yfirvofandi á öðrum sviðum borgarinnar, enda engin vanþörf á. Í viðtali við Morgunblaðið benti Hildur á að nýjasta aðgerðin, þar sem stöðugildum var fækkað um 54, spari borginni um 900 milljónir króna á ári. Markmiðið sé að hagræða um 5-6 milljarða á ári og er þetta því einungis um 15% af því markmiði. *** Úrslit kosninganna í vor sýndi fram á skýrt ákall kjósenda um róttækar breytingar í borgarkerfinu og rekstrinum. Stefnu fyrri vinstri meirihluta, sem hafði fyrir löngu beðið skipbrot, var loks hafnað. Allir áttu þessir meirihlutar það sameiginlegt að vera með Samfylkinguna í bílstjórasætinu, lengst af með Dag B. Eggertsson við stjórnvölinn. Það var fyrirsjáanlegt, og jafnframt spaugilegt, að Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, hafi gagnrýnt þessar nauðsynlegu hagræðingaraðgerðir hvað harðast. Það að ákvörðunin hafi verið samþykkt á aukafundi borgarráðs fór verulega fyrir brjóstið á honum. Sagði hann það gert til að koma í veg fyrir að umræður myndu skapast um málið. Af orðum Péturs má ráða að hann hefði kosið að málið yrði tekið fyrir í rólegheitum á opnum fundum borgarstjórnar þegar þeir hefjast loks á ný eftir langt sumarfrí. Eins og Hildur benti á væri ómannúðlegt gagnvart umræddu starfsfólki að yfirvofandi uppsagnir þeirra sé skeggræddar á opnum vettvangi. Til viðbótar má bæta við að nýr meirihluti má engan tíma missa við að ná tökum á fjárhagsvanda borgarsjóðs. *** Það er skiljanlegt að Samfylkingin sjái eftir völdum sínum í Reykjavíkurborg og að nú sé verið að skera niður fitulagið sem flokkurinn safnaði í valdatíð sinni. Hún þarf þó að venjast því að þetta er, blessunarlega, það sem koma skal. Nýr meirihluti mun á komandi mánuðum og árum kúvenda stefnu Samfylkingarinnar, sem fól í sér sífellt verri þjónustu borgarbúa þrátt fyrir tröllvaxna yfirbyggingu. Tý segir svo hugur að langt sé þangað til að Samfylkingin komist til valda í borginni á ný. Týr er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article